Leikskólastjóri segir fullyrðingar formanns leikskólaráðs rangar 25. janúar 2010 12:25 Úr safni.
Leikskólastjóri á ungbarnaleikskólanum Ársól, segir fullyrðingar formanns leikskólaráðs Reykjavíkurborgar rangar um að börn verði tekin inn á leikskólana að öllu óbreyttu fram á haust. Leikskólum sé sniðinn mjög þröngur stakkur og útlit fyrir að fá börn komist inn fyrr en í ágúst. Á annað hundrað börn bíða eftir leikskólaplássi á ungbarnaleikskólum og biðlistar hrannast upp hjá dagforeldrum. Fréttastofa greindi nýlega frá því að gríðarleg eftirspurn væri eftir barnavistun hjá dagforeldrum og ungbarnaleikskólum á höfuðborgarsvæðinu og biðlistar hrönnuðust upp. Rætt var við dagmóður sem sagði að ástandið myndi versna með vorinu. Sjálf þyrfti hún að vísa frá allt að tíu foreldrum á dag . Í vissum hverfum á höfuðborgarsvæðinu væri nær ómögulegt að fá pláss hjá dagforeldrum. Berglind Grétarsdóttir leikskólastjóri á ungbarnaleikskólanum Ársól segir ástandið þar engu betra. „Eins og staðan er núna erum 135 börn á biðlista. Að minnsti kosti helmingurinn af þeim hefði þurft að komst að núna um áramótin. Um áramótin komu inn á bilinu 35 til 40 umsóknir og ég sé ekki fram á annað en þetta eigi eftir að aukast," segir Berglind. Síðasta ár hafi verið metár í fæðingum auk þess sem dagforeldrum hafi fækkað. Til hafi staðið að opna aðra deild fyrir um fimmtíu börn en það hafi verið blásið af vegna efnahagsástandsins. Berglind segir Ragnar Sæ Ragnarsson formann leikskólaráðs hafa sagt að ekki væri þörf á aukadeildum. „Staðreyndin er bara allt önnur og leikskólar Reykjavíkur eru ekki að taka inn börn í sumar vegna þess að það má ekki ráða sumarstarfsfólk í afleysingar og annað," segir Berlind. Hún segir fullyrðingar Ragnars um að börn yrðu tekin inn alveg fram á haust rangar. „Staðreyndin er önnur vegna þess að það er mikið aðhald í borginni og það er ekki hægt að taka inn ný börn eða börn af flutningsbiðlistum."
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Fleiri fréttir Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Sjá meira