Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 22-14 | Haukar í bikarúrslitin

Vísir Handbolti 12. febrúar 2012 14:30
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 22-14 | Haukar í bikarúrslitin
Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Kolbeinn Tumi Daðason í Schenker-höllinni skrifar:
Haukar eru komnir í úrslit Eimskipsbikarsins í handknattleik eftir sigur á erkifjendunum í FH. Lokatölurnar urðu 22-14 eftir að staðan í hálfleik var 10-10.

Vörn og markvarsla Arons Rafns Eðvarssonar í síðari hálfleik lögðu grunninn að sigri Hauka. FH-ingar skoruðu aðeins fjögur mörk í síðari hálfleiknum.

Það var ljóst frá fyrstu mínútu að það var meira undir í þessum leik en í viðureign liðanna í deildinni fyrr í vikunni. Báðar varnir gengu vasklega fram sem gerði nokkuð taugatrekkum sóknarmönnum beggja liða erfitt fyrir. Þá vantaði ekki lætin í stúkunni og lét stuðningsmenn á báðum hliðum vel í sér heyra.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn en um hann miðjan náðu Haukarnir tveggja marka forystu sem þeim hélst nokkuð þægilega á. Mest var forystan þrjú mörk en FH-ingarnir sýndu styrk undir lok hálfleiksins og jöfnuðu loks 10-10. Sú var staðan er gengið var til búningsherbergja.

Umdeilt atvik átti sér stað seint í fyrri hálfleik. Þá varði Daníel Freyr víti frá Stefáni Rafni með höfðinu. Boltinn sneiddi höfuð Daníels og skoppaði af því yfir markið. FH-ingar vildu að Stefán fengi rautt spjald fyrir að skjóta í höfuð markvarðar úr vítakasti en dómararnir voru ekki sammála.

Óhætt er að segja að leikurinn hafi tekið óvænta stefnu í síðari hálfleik. Aron Rafn kom í mark Haukanna og við tók löng bið FH-inga eftir marki. Fyrsta mark þeirra í hálfleiknum kom eftir 13 mínútna leik og það næsta eftir 23 mínútna leik þegar þeir minnkuðu muninn í 18-12.

Þegar upp var staðið í síðari hálfleiknum hafði FH aðeins skorað fjögur mörk sem dugar ekki til að vinna handboltaleik. Haukar lönduðu öruggum sigri 22-14 og eru komnir í bikarúrslit.

Það kemur í ljós annað kvöld hvort andstæðingar Hauka í úrslitum verða HK eða Fram.


Aron Rafn: Aldrei verið jafnspenntur fyrir leik FH
„Á mínum yngri árum var ég pirraður að byrja ekki leikina. Ég held að það hafi bara þroskast af mér. Nú reyni ég að vera á tánum. Þegar þú kemur inn af bekknum þarftu að standa þig því oftast hefur hinn markvörðurinn ekki verið að standa sig," sagði Aron Rafn og hrósaði Birki fyrir hans frammistöðu fram að brottvísuninni.

„Birkir er klassa markvörður og var góður í dag eins og á fimmtudaginn. Hann hegðaði sér reyndar ekki eins og reynslumesti maður vallarins þegar hann sagði dómurunum til syndanna undir lok fyrri hálfleiksins," sagði Aron Rafn í gamansömum tón en brottvísun Birkis Ívars varð til þess að Aron kom inn á.

FH skoraði aðeins fjögur mörk í öllum seinni hálfleiknum. Ótrúlega lágt markaskor í nútíma handbolta.

„Vörnin var fáránlega góð. Freysi, Matti, Svenni, Stebbi og Gylfi, það voru bara allir fáránlega góðir og staðráðnir að vinna þennan leik. Við gáfum okkur alla í leikinn vitandi það að þetta væri úrslitaleikur. Það verður gaman að spila í Laugardalshöllinni," sagði Aron sem var ánægður með að kvitta fyrir tapið gegn FH í deildinni á fimmtudag.

„Ég svaf bara í þrjá tíma nóttina eftir tapið á fimmtudaginn, ég var svo svekktur. Ég held ég hafi aldrei verið jafnspenntur fyrir leik gegn FH að geta svarað fyrir þann leik," sagði maður leiksins.


Andri Berg: Aron ver hreinlega allt
Þjálfarar og leikmenn FH voru fljótir að koma sér inn í klefa í leikslok. Andri Berg Haraldsson gaf sér þó tíma til að ræða við blaðamann.

Liðin mættust í deildinni á fimmtudag og var staðan í hálfleik þá 10-10 líkt og nú. Þá tóku FH-ingar völdin í síðari hálfleik en áttu ekkert svar í dag.

„Þetta snerist við. Við áttum seinni hálfleikinn síðast en þeir núna. Aron ver hreinlega allt í markinu, reyndar ekki góð skot hjá okkur en þeir ganga bara á lagið," sagði Andri Berg.

Leikmenn FH gerðu sig seka um ótal mistök í sóknarleiknum. Þeir töpuðu boltanum á klaufalegan hátt og náðu ekki að skapa sér góð færi. Andri var ekki viss um að hjartslátturinn hefði verið örari í þessum leik vegna þess hvað var í húfi.

„Þessir Hafnarfjarðarleikir eru auðvitað svakalegir en við ætluðum bara að vinna þennan leik eins og þann seinasta. Það var kannski meira í húfi en þeir voru bara betri," sagði Andri Berg.

„Þetta var stirrt hjá okkur í sókninni og þeir ganga á lagið í vörninni. Svo ver hann auðvitað allt í markinu," sagði Andri sem var beðinn um að finna eitthvað jákvætt við frammistöðu FH-inga.

„Markvarslan er alltaf góð hjá okkur og vörnin þokkaleg. En þegar sóknarleikurinn er svona þarf vörnin að vera ennþá betri," sagði Andri sem segir leiðinlegt að komast ekki í bikarúrslit en enn verra að Haukar fari þangað í þeirra stað.

„Já, það er ömurlegt. Það verður bara að halda með hinu liðinu sem verður vonandi Fram."


Aron Kristjáns: Erfitt að ákveða hver byrjar í markinu
„Ég vil fyrst og fremst hrósa liðinu fyrir frábæra baráttu. Við hirðum alla lausa bolta, vörnin er mjög þétt og markverðirnir vörðu mun betur en á fimmtudaginn," sagði kampakátur Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, í leikslok.

„Því má ekki gleyma að Daníel varði vel í FH-markinu. Við töluðum samt mikið um að þora að taka færin okkar, halda áfram öguðum leik og ekki láta það á okkur fá þó hann væri að verja. Það var auðvitað mjög ánægjulegt," sem gat þó ekki annað en hrósað Aroni Rafni sérstaklega.

Aron Rafn stóð vaktina í marki Hauka í síðari hálfleik og því sem næst lokaði því. Aron þjálfari sagði að sér hefði verið vandi á höndum fyrir leikinn að ákveða hvor markvörðurinn myndi byrja.

„Okkur var vandi á höndum fyrir leikinn að ákveða hvor markvörðurinn ætti að byrja. Það liggur við að það þurfti að kasta upp peningi," sagði Aron sem játaði því að valið yrði líklega ekki jafnerfitt fyrir næsta leik. Hann minnti þó á að Birkir hefði staðið vaktina vel í fyrri hálfleik þegar liðið fékk aðeins á sig tíu mörk.

„Það má segja Aroni til hróss að hann er orðinn miklu betri í því að koma inn á í leikjum. Hann vantaði það en hefur bætt sig mikið í því í vetur. Ef þú ert í sterku markvarðarteymi þarftu að geta það líka," sagið Aron sem á sér engan óskamótherja. HK og Fram mætast í síðari undanúrslitaviðureigninni á morgun.

„Megi betra liðið vinna," sagði Aron.

Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 25. maí. 2012 07:00

Ólafur getur unnið í þriðja landinu

Ólafur Stefánsson á möguleika á því að vinna Evrópukeppni meistaraliða í fimmta sinn á fer...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 17:45

Ágúst og Rakel Dögg stofna saman Handknattleiksakademíu

Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna og Rakel Dögg Bragadóttir fyrirliði landsliðs kv...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 10:16

Kvennalandsliðið mætir U-16 liði karla

A-landslið kvenna í handbolta mun í kvöld leika æfingaleik gegn íslenska piltalandsliðinu ...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 08:00

Snorri Steinn: Mætum óhræddir til leiks

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta ráðast um helgina. Þá fara fram undanúrslit og...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 07:30

Óli er maður stóru leikjanna

Ólafur Stefánsson mun mæta sínum gömlu félögum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á la...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 22:39

Heimir Óli búinn að semja við GUIF

Haukamaðurinn Heimir Óli Heimisson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við sænska...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 19:40

Fínn leikur Hannesar dugði ekki til sigurs

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf varð að sætta sig við tap, 35-37, á heimavelli gegn Gumm...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 23:30

Guðmundur grillar ofan í stuðningsmenn Löwen

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, og lærisveinar hans verða með grillspa...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 20:30

Þrjú ný félög í N1-deild kvenna

Alls verða tólf lið í N1-deild kvenna næsta vetur þar sem þrjú ný félög hafa boðað þáttöku...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 13:00

Anton til Danmerkur

Anton Rúnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið Sö...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 20:00

Noregur, Króatía og Pólland berjast um EM 2016

Þrjú lönd eru enn í baráttunni um að halda EM í handbolta árið 2016. Það verður ákveðið í ...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 13:30

Lövgren lofar Ólaf og Alexander

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu ráðast í Köln í Þýskalandi um helgina og hefur Svíinn Stef...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 07:00

Þórir: Togaði í að fá að spila í Meistaradeildinni og að vinna titla

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu um helgina pólskir meistarar í handbolt...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 21:36

Sunneva Einarsdóttir ver mark Stjörnunnar á næsta tímabili

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gert samning við markvörðinn Sunnevu Einarsdóttir en...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 20:30

Stefnir allt í fullkomið tímabil hjá Kiel | 32 sigrar í röð

Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir það að þýska handknattleiksliðið Kiel skrái sig ...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 19:21

Jón Heiðar gengur til liðs við ÍR

Handknattleiksmaðurinn Jón Heiðar Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍR og mun...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 07:00

Þórey og Rut rétt misstu af bronsinu

Íslensku landsliðskonunar Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir urðu í fjórða sæti me...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 19:42

Fimm mörk Kára ekki nóg á móti Hamburg - mikilvægt hjá Bergischer

Kári Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir HSG Wetzlar þegar liðið tapaði 26-28 á heimavelli f...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 17:02

AG í úrslitaleikinn um titilinn - Ólafur mjög góður í sigri á Kolding

AG Kaupmannahöfn tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handbolt...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 14:28

Þórir pólskur meistari í handbolta

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu nú áðan pólskir meistarar í handbolta e...  

Meira
Handbolti 18. maí. 2012 19:30

Mikilvægur sigur hjá Füchse Berlin

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin færðust í kvöld skrefi nær því að tryggja ...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 22:45

Þjálfari Rúnars Kárasonar rekinn

Rúnar Kárason fær senn nýjan þjálfara hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Bergischer HC þar se...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 21:15

Alfreð: Slekk á símanum í 3-4 vikur og sinni garðinum

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í Þýskalandi, segir að það sé mikilvægt að hvílast vel þega...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 16:32

Benedikt Reynir til liðs við Aftureldingu

Mosfellingar hafa fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil í N1-deild karla en Benedikt Reynir...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 12:45

Sögusagnir í Þýskalandi: Guðmundur að hætta með Löwen

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Rhein-Neckar Löwen, gæti veri...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 20:25

Hrun hjá Löwen í seinni hálfleik

Rhein-Neckar Löwen steinlá fyrir Flensburg á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 3...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:46

Kiel enn ósigrað í Þýskalandi

Kiel hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með sex mar...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:31

Rut og Þórey nálgast bronsið

Þórey Rut Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir skoruðu sitt markið hvor þegar að lið þeirra, Te...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 17:44

Vignir í fjórtán daga bann

Vignir Svavarsson hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann vegna rauða spjaldsins sem hann ...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 11:57

Sunna kölluð inn í A-landsliðið

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hefur þurft að gera eina breytin...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 08:00

Pistillinn: Hver er þróun kvennahandboltans?

Eftir að hafa fylgst með undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik hugsar maður hvert k...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 06:00

Spenntur fyrir landsliðinu

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að mest spennandi þjálfarastarf á Íslandi sé land...  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 17:16

Gunnar Berg tekur við Stjörnunni

Gunnar Berg Viktorsson mun að óbreyttu taka við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handbolta....  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 12:30

HK missir Elínu Önnu yfir í FH

Elín Anna Baldursdóttir, markahæsti leikmaður HK í úrslitkeppni N1 deildar kvenna og einn ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 22:45

Kjelling tekur þátt í úrslitakeppninni í Katar

Norski landsliðsmaðurinn Kristian Kjelling er staddur þessa dagana í Katar þar sem hann le...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 18:43

Sigurbergur Sveinsson í Hauka

Sigurbergur Sveinsson hefur gert tveggja ára samning við deildarmeistara Hauka. Hann lék s...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 17:15

Árni Þór semur við Friesenheim

Örvhenta skyttan Árni Þór Sigtryggsson mun enn á ný söðla um í Þýskalandi í sumar en hann ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 13:00

Örn Ingi hættur í FH og farinn í Aftureldingu

Örn Ingi Bjarkason, leikmaður í úrvalsliði N1 deildar karla í handbolta, hefur gert tveggj...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 19:00

Ágúst Þór búinn að velja landsliðshópinn

Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari A-liðs kvenna í handknattleik, hefur valið 20 leik...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 17:43

Refirnir frá Berlín hökkuðu Sverre og félaga í sig

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin styrktu stöðu sína í þriðja sæti þýsku úrv...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:59

Flottur útisigur hjá Hannover

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf vann góðan útisigur á Hildesheim í dag og reif sig um le...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:52

Sigurjón semur við uppeldisfélagið

ÍR-ingar halda áfram að safna liði fyrir komandi átök í N1-deild karla. Þeir hafa nú samið...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 12:40

Kiel í litlum vandræðum með Hamburg | Stefnir í fullkomið tímabil

Það stefnir svo sannarlega í fullkomið tímabil hjá lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Kiel e...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 00:05

Ólafur Bjarki og Stella valin best í handboltanum

Það var mikið um dýrðir í kvöld þegar lokahóf HSÍ fór fram. Þau Ólafur Bjarki Ragnarsson ú...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 18:36

Flott endurkoma hjá Kára og félögum

Kári Kristján Kristjánsson og félagar í Wetzlar nældu á stig á útivelli er þeir sóttu TuS ...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:33

AG gerði jafntefli í fyrri undanúrslitaleiknum

Dönsku meistararnir í AG gerðu jafntefli, 26-26, í fyrri leik sínum við Kolding í undanúrs...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:21

Gleði á Hlíðarenda - myndaveisla

Valskonur urðu Íslandsmeistarar í handknattleik í dag er þær unnu afar sannfærandi sigur á...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:53

Hrafnhildur: Verð bara betri með árunum

"Ég verð aldrei þreytt á því að lyfta þessum bikar, enda er ég með frekar góða upphandlegg...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:50

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 24-21 | Valur Íslandsmeistari

Valur varð í dag Íslandsmeistari í handknattleik kvenna eftir frábæran sigur á Fram, 24-21...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:29

Rúnar og félagar voru flengdir

Rúnar Kárason skoraði eitt mark þegar lið hans, Bergischer, var flengt af Flensburg með sa...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Handbolti / Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 22-14 | Haukar í bikarúrslitin