FH fær tækifæri til að verja Íslandsmeistaratitil sinn í handbolta eftir að hafa rutt Akureyringum úr vegi í undanúrslitarimmu liðanna í úrslitakeppni N1-deildar karla. FH vann fjórða leik liðanna í kvöld og þar með rimmuna, 3-1.
FH-ingar voru skrefi framar nánast allan leikinn en Akureyringar voru þó aldrei langt undan. Munurinn í hálfleik var tvö mörk, 14-12.
Liði Akureyrar dugði ekkert annað en sigur í þessum leik og gaf Sveinbjörn Pétursson, markvörður liðsins, tóninn þegar hann varði víti Hjalta Þór Pálmasonar í upphafi leiksins. Í upphafi var jafnræði með liðunum og þau skiptust á að leiða með einu marki.
Það var svo á 19. mínútu sem það lifnaði heldur betur yfir leiknum. Akureyringar misstu tvo leikmenn af velli með stuttu millibili og FH-ingar gengu á lagið og náðu mest fimm marka forustu. Undir lok hálfleiksins svöruðu Akureyringar aftur fyrir sig og náðu að minnka forskotið niður í tvö mörk, 12-14.
Nokkuð illa gekk hjá leikmönnum beggja liða að koma boltanum í netið í upphafi síðari hálfleiks. Markverðir beggja liða vörðu vel ásamt því að sóknarleikur liðanna gekk ekki að óskum. FH-ingum tókst þó að halda Akureyringum 2-3 mörkum frá sér þangað til um tíu mínútur voru eftir en þá náðu Akureyringar að minnka muninn í eitt mark. Nær komust Akureyringar þó ekki og á endanum landaði FH verðskulduðum þriggja marka sigri.
Ólafur: óþarfi að gefa HK auka frí
„Það er algjör óþarfi að gefa HK lengra frí til að jafna sig þannig að við lögðum upp með það að klára þetta í kvöld. Það var frábært að það hafðist," sagði Ólafur sem var markaæhstur leikmanna FH ásamt Ragnari Jóhannssyni.
„Annars var hrikalega lítill munur á liðunum í kvöld. Við náðum smá forskoti en þeir náðu svo að minnka muninn í eitt mark. Eftir það var leikurinn í járnum en við græddum á því að eiga óþreytta menn á bekknum fyrir lokasprettinn. Ég fékk hvíld í síðasta leik þannig að ég var fullur af orku í dag og ætlaði mér að klára þetta í þessum leik."
Kristján: Ekki gaman nema að þetta sé erfitt
„Við vorum með aðeins meiri breidd og náðum að rúlla á fleiri leikmönnum. 6-0 vörnin okkar var mjög sterk og þeir áttu í erfiðleikum með hana. Raggi átti frábæran leik og Óli kom mjög sterkur inn í seinni hálfleikinn. Aðrir leikmenn líka að gera góða hluti," sagði Kristján.
„Við héldum þeim niðri í hraðaupphlaupum þangað til að þeir fóru að taka áhættu og keyra á okkur. Með því náðu þeir að komast aftur inn í leikinn en við héldum okkar línu, fórum ekki á taugum og náðum að koma þessu í hús."
„Þetta er 17. leikurinn sem við spilum gegn Akureyri núna á tveimur árum í opinberum leikum á vegum HSÍ - vídeófundirnir voru orðnir ansi þreyttir. Það er gott að fá aðeins að hvíla okkur fyrir átökin á móti HK sem sýndi virkilega mikinn styrkleika á móti Haukum. Það verður erfitt en annars væri ekkert gaman að þessu."
Atli: Við hefðum viljað fara lengra
„Þetta féll svolítið með þeim í dag og vorum við frekar óheppnir," sagði Atli Hilmarsson, sem stýrði Akureyri í síðasta sinn í kvöld.
„Það verður ekkert tekið af FH-ingum - þeir spiluðu vel. Þegar við lentum tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik misstum við dampinn. Það var ætlunin að jafna leikinn strax í upphafi seinni hálfleiks en við fórum svolítið illa að ráði okkar."
„Við hefðum þurft að ná að jafna leikinn en komumst aldrei nær en einu marki. FH-ingarnir spiluðu bara vel og eru verðugir sigurvegarar þessa einvígis."
„Við vorum búnir að hafa mikið fyrir því að komast í þessa úrslitakeppni og lentum í miklum hremmingum á leiðinni. Mér fannst samt mjög flott að ná þriðja sætinu í deildinni og við hefðum viljað fara lengra í úrslitakeppninni. Ég vil meina að við séum með lið til þess en heimaleikjarétturinn reyndist ef til vill dýrmætur fyrir FH-inga þegar uppi var staðið."
Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Ólafur Stefánsson er besta hægri skyttan í 20 ára sögu Meistaradeildarinnar í handbolta en það var staðfest þegar íslenski landliðsmaðurinn og fjórfaldur meistari í Meistaradeildinni var valinn í úrva...
Meira
Þýska blaðið Bild birtir í dag myndir á vefsíðu sinni af Króatanum Ivan Nincevic sem slasaðist illa eftir að hafa verið skallaður í handboltaleik.
Meira
Eitt ljótasta brot sem sést hefur í þýska handboltanum í áraraðir átti sér stað í leik Hamburg og Füchse Berlin á þriðjudag. Aðeins 37 sekúndum fyrir leikslok gerði Torsten Jansen, leikmaður Hamburg, ...
Meira
Kielce, lið Þóris Ólafssonar, er aðeins einum sigri frá pólska meistaratitlinum í handbolta en liðið er komið í 2-0 í úrslitarimmunni gegn Wisla Plock.
Meira
Rhein-Neckar Löwen undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar vann á sunnudaginn EHF-bikarinn eftir 26-24 sigur á Nantes í Frakklandi. Titillinn er sá fyrsti sem félagið vinnur í ellefu ára sögu þess...
Meira
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði sex mörk fyrir Tvis Holstebro í 23-27 tapi gegn Midtjylland í fyrri úrslitaleik liðanna um danska meistaratitilinn.
Meira
Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen urðu í dag Evrópumeistarar í handknattleik eftir 26-24 sigur á Nantes í úrslitaleik EHF-bikarsins í Frakklandi.
Meira
Rhen-Neckar Löwen mætir Nantes í úrslitum EHF-bikarsins í handbolta á morgun eftir að hafa sigraði Göppingen 28-22 í undanúrslitum í Nantes í dag.
Meira
Nantes er komið í úrslit EHF-bikarsins eftir góðan 26-20 sigur á danska liðinu Team Tvis Holstebro en úrslitahelgi EHF-bikarsins er leikin í Nantes.
Meira
Einar Ingi Hrafnsson og félagar í Mors-Thy Håndbold þurftu að sætta sig við 25-26 tap á heimavelli á móti Skjern Håndbold í fyrsta leik liðanna í einvíginu um bronsverðlaunin í dönsku handboltadeildin...
Meira
Arnór Atlason er kominn á fulla ferð eftir hásinarslit og hann skoraði fimm mörk í kvöld þegar Flensburg-Handewitt vann ellefu marka útisigur á TV 1893 Neuhausen, 37-26.
Meira
Ólafur Stefánsson verður formlega kvaddur þegar Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni EM 2014 þann 16. júní næstkomandi. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni.
Meira
Florentina Stanciu, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð frá liði í heimabæ sínum í Rúmeníu, SCM Craiova. Hún hefur í hyggju að semja við liðið til eins árs en snúa svo aftur til Íslands.
Meira
Alfreð Gíslason vann á þriðjudagskvöldið sinn tíunda stóra titil sem þjálfari þýska stórliðsins Kiel. Aðeins fimm tímabil eru síðan hann tók við og á þeim tíma hefur liðið náð í meira en 91 prósent st...
Meira
Aron Pálmarsson varð Þýskalandsmeistari í þriðja sinn með Kiel í gærkvöldi þegar liðið vann sannfærandi 31-25 sigur á Rhein-Neckar Löwen og Kiel búið að tryggja sér titilinn þrátt fyrir að liðið eigi ...
Meira