Innlent

Leiðréttingar forsætisráðherra halda ekki vatni

Jakob Bjarnar skrifar
Hugmyndir Sigmundar Davíðs um framgöngu sína í menntaskóla standast því miður ekki, að sögn Stefáns Pálssonar.
Hugmyndir Sigmundar Davíðs um framgöngu sína í menntaskóla standast því miður ekki, að sögn Stefáns Pálssonar.
Leiðréttingar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forstætisráðherra, þær er snúa að spurningum í Gettu betur varðandi það hvort hann komst í ræðulið MR eða ekki, (Sigmundur vill meina að hann hafi komist í liðið), standast enga skoðun, að sögn Stefáns Pálssonar sagnfræðings; hann komst aldrei í ræðuliðið.

Vísir greindi frá því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafi séð sig knúinn til að leiðrétta leiðrétta dómara og spyrla Gettu betur. „Því var haldið fram að ég hefði aldrei komist í Morfís-lið MR. Raunin er sú að ég reyndi einu sinni að komast í liðið og vann undankeppnina. Að því búnu ákvað skólinn að draga sig úr Morfís-keppninni það árið,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Einhver helsti sérfræðingur landsins á sviði spurningakeppna, ekki síst Gettu betur auk þess að hafa á sínum tíma verið á bólakafi í ræðukeppnum á vegum MR, er Stefán Pálsson sagnfræðingur. Hann hefur nú sett ofan í við Sigmund Davíð, og reyndar er tónninn í Stefáni eins og að hann sé að ávarpa frekan krakka. Stefán skrifar á Facebooksíðu sína eftirfarandi:

„Nei Sigmundur. Þú vannst innanskólakeppni, annað hvort Orator Scholae eða Orator Minor. Það var hins vegar engin „undankeppni“ enda var það að vera í MorfÍs-liði ekki staða, heldur var stillt upp í lið fyrir hverja viðureign. Eftir að við Úlfur Eldjárn töpuðum á MR-Verslódeginum haustið 1993 fyrir Gulla busa fengum við samþykkt í bræði að MR hætti í MorfÍs. Þá var hins vegar ekkert búið að draga hvað þá að búið væri að velja í lið.“

Stefán bætir því svo við að þjálfari MR-liðsins þarna hafi verið Daníel Freyr Jónsson. „Mér er til efs að hann hafi nokkru sinni hitt Sigmund Davíð á þessum árum, hvað þá meira.“ Stefán segir þetta reyndar skemmtilega rökfræðilega spurningu: „er hægt að vera í MorfÍs-liði sem keppir ekki í MorfÍs? Kannski svipað og að segja að maður hafi verið íslenski keppandinn í Eurovision 1998 og 2002... bara við ekki verið með.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×