Körfubolti

LeBron yngstur í sögunni í 30.000 stiga klúbbinn en Cleveland er í molum | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
LeBron James er geggjaður en Cleveland getur lítið þessa dagana.
LeBron James er geggjaður en Cleveland getur lítið þessa dagana. vísir/getty
LeBron James heldur áfram að skrá nafn sitt á spjöld körfuboltasögunnar, en í nótt varð hann yngsti maðurinn í sögunni sem skorar 30.000 stig í NBA-deildinni.

Hann er aðeins sjöundi leikmaður sögunnar sem skorar 30.000 stig eða meira en hann er nú kominn í glæsilegan einkaklúbb með Kareem Abdul-Jabbar, Karl Malone, Kobe Bryant, Michael Jordan, Wilt Chamberlain og Þjóðverjanum Dirk Nowitzki sem var síðastur til að skora svona mörg stig á undan LeBron.

Lebron James er aftur á móti sá fyrsti í sögunni sem er einnig búinn að taka ríflega sjö þúsund fráköst og gefa ríflega sjö þúsund stoðsendingar á sama tíma og hann er búinn að skora 30.000 stig. Körfuna sögulegu skoraði hann undir lok fyrsta leikhluta í tapi gegn San Antonio Spurs í nótt.

Það nefnilega gengur ekkert hjá Cleveland þessa dagana þrátt fyrir að LeBron sé enn að sýna að hann er besti körfuboltamaður í heimi.

Liðið er aðeins búið að vinna þrjá af síðustu tíu leikjum sínum og tapaði fyrir Spurs sem nær varla í lið þessa dagana vegna meiðsla. Það er án flestra sinna lykilmanna.

Þjálfarinn Tyronn Lue er gagnrýndur harðlega leik eftir leik fyrir að gera ekki breytingar á liðinu sem getur ekki varist til að bjarga lífi sínu en eftir leikinn í gær sagðist hann loksins ætla að gera breytingar á byrjunarliðinu.

Leikmenn Cleveland héldu krísufund í fyrradag þar sem þeir réðust að Kevin Love og sökuðu hann um að gera sér upp veikindi í miðjum leik á dögunum. Fundurinn var sagður af bandarískum fjölmiðlum hafa hreinsað loftið en hann skilaði allavega ekki sigri í gær.

Cleveland er í þriðja sæti austurdeildarinnar, fjórum sigrum frá öðru sæti og heilum sjö sigrum frá Boston Celtics sem trónir á toppi austursins. Boston tapaði þó fyrir Lakers í nótt.

Úrslit næturinnar:

Orlando Magic - Sacramento Kings 99-105

OKC Thunder - Brooklyn Nets 108-109

San Antonio Spurs - Cleveland Cavaliers 114-102

Golden State Warriors - New York Knicks 123-112

LA Lakers - Boston Celtics 108-107

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×