FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 14:30

Bale byrjaður að tala um næsta tímabil

SPORT

LeBron sjóðandi heitur og oddaleikur framundan í Miami

Vísir Körfubolti 08. júní 2012 08:43
Paul Pierce og félagar áttu ekkert í LeBron í nótt.
Paul Pierce og félagar áttu ekkert í LeBron í nótt. NORDICPHOTOS/GETTY
LeBron James bauð upp á eins manns sýningu í 98-79 sigri Miami Heat á Boston Celtics í Boston í sjötta leik liðanna í úrslitum austurdeildar NBA í nótt. LeBron skoraði 45 stig og liðsmenn Boston áttu engin svör.

Boston var í kjörstöðu eftir sigur í fimmta leik liðanna í Miami. Sigur í gærkvöldi hefði komið liðinu í úrslitaeinvígið gegn Oklahoma City Thunder. Liðið var þó alltaf skrefinu á eftir Miami sem landaði nokkuð þægilegum sigri.

„Hann var stórkostlegur og gaf tóninn fyrir lið þeirra. Hann setti niður fjölmörg erfið skot," sagði Doc Rivers þjálfari Boston-liðsins sem fannst hans menn ekki standa sig nógu vel í vörninni gegn LeBron.

LeBron nýtti nítján af 26 skotum sínum en var líka með fimmtán fráköst og fimm stoðsendingar. Það eru bestu tölur sem hafa sést í úrslitakeppninni síðan að Wilt Chamerlain náði 50 stigum, fimmtán fráköstum og sex stoðsendingum í leik árið 1964.

James hefur tvisvar áður upplifað það að detta úr leik í úrslitakeppninni í höllinni í Boston og var greinilegt að hann hafði engan áhuga á að gera það aftur.

„Það var að duga eða drepast fyrir okkur og það er gott að sjá að við gátum náð okkar besta fram eftir tap á heimavelli í síðasta leik,“ sagði James eftir leikinn.

Hjá Boston var leikstjórnandinn Rajon Rondo stigahæstur með 21 stig. Næstir komu Brandon Bass og Kevin Garnett með 12 stig. Vörn Miami var afar ákveðinn í kringum körfuna og þvinguðu liðsmenn Boston til að skjóta fyrir utan. Skyttur heimamanna voru hins vegar ískaldar og settu aðeins niður eitt af fjórtán skotum sínum.

Sjöundi og síðasti leikur liðanna fer fram í Miami aðfaranótt sunnudags. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Körfubolti 23. maí 2013 07:31

Dramatískur sigur Miami í framlengingu

LeBron James var sem fyrr í aðalhlutverki þegar að Miami tók forystu gegn Indiana í úrslitarimmu Austurdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta. Meira
Körfubolti 22. maí 2013 23:20

Bandaríkjamaður þjálfar Keflavíkurliðin

Keflavík fann í kvöld arftaka Sigurðar Ingimundarsonar en félagið réð þá Bandaríkjamanninn Andy Johnston sem þjálfara karla- og kvennaliðs félagsins. Meira
Körfubolti 22. maí 2013 12:15

Gaf eina milljón dollara í neyðarsjóð

Kevin Durant, einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta og leikmaður Oklahoma City, gaf eina milljón dollara til Rauða krossins vegna hamfarana í Oklahoma á dögunum. Meira
Körfubolti 22. maí 2013 08:45

Landsliðsmaður hóf ferilinn í torffjósi

Axel Kárason, landsliðsmaður í körfubolta, er í skemmtilegu viðtali á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands í Hvanneyri. Meira
Körfubolti 22. maí 2013 07:16

San Antonio komið í 2-0

Tony Parker var magnaður í mikilvægum sigri San Antonio á Memphis, 93-89, í framlengdum leik í lokaúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Meira
Körfubolti 21. maí 2013 19:08

Justin valinn í landsliðið fyrir Smáþjóðaleikana

Landsliðsþjálfararnir í körfubolta hafa valið leikmannahópa sína fyrir Smáþjóðaleikana sem hefjast þann 26. maí næstkomandi. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 22:06

Tony Parker frábær og San Antonio leiðir 1-0

San Antonio Spurs vann öruggan 105-83 sigur á Memphis Grizzlies í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA í kvöld. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 13:32

14 stig Jóns Arnórs í lokaumferðinni

Jón Arnór Stefánsson skoraði 14 stig fyrir CAI Zaragoza sem lagði UCAM Murcia 108-74 í lokaumferð spænsku deildarkeppninnar í dag. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 11:42

Berst fyrir lífi sínu eftir hnífstungu

Predrag Danilovic, sem árið 1994 var valinn besti körfuboltamaður Evrópu, berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Belgrad. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 11:15

Indiana kláraði New York

Indiana Pacers tryggði sér í nótt sæti í úrslitum Austurdeildar NBA með 106-99 sigri á New York Knicks í sjötta leik liðanna. Meira
Körfubolti 18. maí 2013 12:45

Búið að selja Sacramento Kings

Kevin Johnson borgarstjóri Sacramento tilkynnti í gær að eigendur NBA körfuboltaliðsins Sacramento Kings hafa samþykkt að selja hugbúnaðarviðskiptajöfrinum Vivek Ranadive félagið. Meira
Körfubolti 18. maí 2013 11:00

Nowitzki tilbúinn að lækka launinn

Dirk Nowitzki þýska stórstjarna NBA körfuboltaliðsins Dallas Mavericks hyggst taka á sig verulega launalækkun næsta sumar í von um að lokka aðra stórstjörnu til liðsins. Meira
Körfubolti 17. maí 2013 23:30

Phil Jackson: Jordan var miklu meiri leiðtogi en Kobe

Phil Jackson vann fjölmarga NBA-titla með bæði Michael Jordan (6) og Kobe Bryant (5) en hefur hingað til ekki verið mikið fyrir að bera þessa tvo stórbrotnu leikmenn saman eða fyrr en nú. Jackson ber ... Meira
Körfubolti 17. maí 2013 22:48

Siggi Ingimundar þjálfar ekki áfram í Keflavík

Sigurður Ingimundarson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur í Dominos-deild kvenna, verður ekki áfram þjálfari meistaraflokka Keflavíkur en hann þjálfaði einnig karlaliðið síðasta vetur. Þet... Meira
Körfubolti 17. maí 2013 09:00

Reynslan hafði betur | Golden State úr leik

San Antonio er komið áfram í úrslit Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta eftir sigur á Golden State í nótt, 94-82. Meira
Körfubolti 16. maí 2013 10:30

Jón Halldór þjálfar Grindavík

Keflvíkingurinn Jón Halldór Eðvaldsson hefur gert tveggja ára samning við Grindavík um að stýra kvennaliði félagsins í körfubolta. Meira
Körfubolti 16. maí 2013 09:00

Miami og Memphis áfram

Oklahoma City og Chicago Bulls eru bæði úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir að hafa tapað rimmum sínum 4-1. Meira
Körfubolti 15. maí 2013 22:36

Oddur og Oddur sömdu við Val

Nýliðar Vals hafa styrkt sig með tveimur leikmönnum fyrir komandi tímabil í Dominos-deild karla í körfubolta en það eru þeir Oddur Birnir Pétursson og Oddur Ólafsson. Þetta kom fyrst fram á karfan.is ... Meira
Körfubolti 15. maí 2013 07:00

San Antonio náði forystunni á ný

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. San Antonio og Indiana unnu þá sigra á heimavelli. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 23:17

Falur nýr formaður í Keflavík - Guðjón og Albert kom inn í stjórn

Falur Jóhann Harðarson, margfaldur Íslandsmeistari með Keflavík sem bæði leikmaður og þjálfari, er tekinn við sem formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 07:45

Skoraði í eigin körfu | Myndband

Chicago Bulls lenti í alls kyns vandræðum gegn Miami Heat í nótt en vandræðalegasta "skot“ kvöldsins átti bakvörðurinn Marquis Teague. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 07:00

Miami og Memphis komin í 3-1

Miami og Memphis unnu bæði lykilleiki í rimmum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Meira
Körfubolti 13. maí 2013 19:30

Fékk rúmlega fjögurra milljóna króna sekt

Tom Thibodeau, þjálfari Chicago Bulls, var ekki sáttur við dómgæsluna í fyrstu þremur leikjunum í einvígi hans manna og Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta og lét nokkur vafasöm orð fjalla á blaða... Meira
Körfubolti 13. maí 2013 06:54

Curry meiddur en spilaði í sigri Golden State

Hið unga lið Golden State Warriors náði í gærkvöldi að jafna metin gegn San Antonio Spurs í rimmu liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Meira
Körfubolti 12. maí 2013 19:14

Þrjú silfur og fjögur í úrvalsliðum NM unglinga í körfu

Íslensku unglingalandsliðin í körfubolta unnu til þrennra silfurverðlaun á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem lauk í Stokkhólmi í dag. Bæði 18 ára liðin sem og 16 ára lið karla urðu í 2. sæti á... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Körfubolti / LeBron sjóðandi heitur og oddaleikur framundan í Miami
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000