Fótbolti

Lavezzi: Messi mun vinna með Argentínu einn daginn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi í leik með Argentínu.
Messi í leik með Argentínu. vísir/getty
Ezequiel Lavezzi, framherji Argentínu, segir að einn daginn muni Lionel Messi standa uppi sem sigurvegari með þjóð sinni.

Argentína tapaði gegn Síle í úrslitaleik Suður-Ameríkukeppninnar í gærkvöldi, en úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Á síðasta ári tapaði svo Argentína gegn Þýskalandi í úrslitaleik HM og því tvö töp í röð hjá Messi og liðsfélögum hans í Argentínu.

„Á einhverjum tímapunkti mun Messi vinna með Argentínu. Við héldum að þetta væri tækifærið, en því miður unnum við ekki. Það svíður mikið," sagði Lavezzi við fjölmiðla.

Gonzalo Higuain og Ever Banega klikkuðu af vítapunktinum og Alexis Sánchez tryggði Síle sigur með svokölluðu 'Paneka' víti.

„Einu sinni enn erum við skildir eftir í sárum. Þetta svíður því nú héldum við að við myndum vinna. Við höldum áfram að ganga veginn. Það er svo lítið sem vantar uppá."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×