Laun bankastjóranna lækka um rúm 800 þúsund Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. maí 2009 09:56
Laun bankastjóra Íslandsbanka og Kaupþings munu lækka um að minnsta kosti 815 þúsund krónur verði launum starfsmanna ríkisins breytt þannig að engin hafi hærri laun en forsætisráðherra. Laun þeirra nema nú 1750 þúsund krónum eftir því sem komið hefur fram í fjölmiðlum, en forsætisráðherra hefur 935 þúsund krónur á mánuði samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu. Laun bankastjóra Landsbankans nema 1500 þúsund krónum og eru því 565 þúsund krónum hærri en laun forsætisráðherra. Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, hefur rétt rúmar 1390 þúsund krónur í laun á mánuði samkvæmt upplýsingum frá Kjararáði og er því með um 455 þúsund krónum meira en forsætisráðherra. Samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, eru laun hans um 1218 þúsund krónur á mánuði og er því munur á launum hans og forsætisráðherra 283 þúsund krónur. Þá er Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, með 1250 þúsund krónur í laun eftir því sem fram kom í fréttum RÚV í gær. Það er 315 þúsund krónum meira en forsætisráðherra. Laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra eru 1155 þúsund krónur, ef frá eru talin bifreiðahlunnindi, sem myndi þýða 220 þúsund króna launalækkun fyrir hann, nái tillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, treysti sér ekki til þess að gefa upp laun sín þegar fréttastofa hafði samband við hann í gær en sagði ljóst að hann væri með hærri laun en forsætisráðherra.Jóhanna Sigurðardóttir er með 935 þúsund krónur á mánuði í laun.Ásmundur Stefánsson, forstjóri Landsbankans mun lækka um 565 þúsund krónur.Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, mun lækka um 815 þúsund.Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Kaupþings mun lækka um 815 þúsund.Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, lækkar um 455 þúsund krónur hið minnsta.Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunnar, gefur ekki upp hvað hann er með í laun á mánuði.Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs er með 1218 þúsund krónur í laun á mánuði í dag.Gunnar Andersen er með 1250 þúsund krónur.Laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra lækka sennilega um 350 þúsund.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Innlent Fleiri fréttir Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Sjá meira