FÖSTUDAGUR 24. MAÍ NÝJAST 13:49

Ný ríkisstjórn hóf fund klukkan 13

FRÉTTIR

Latte og annað pjatt

Fréttablaðið Fastir pennar 11. júní 2012 06:00
Guðmundur Andri Thorsson.
Guðmundur Andri Thorsson.
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:
Umræða um sjávarútvegsmál hér á landi beinist alltaf fyrr eða síðar að kaffidrykkju og búsetuháttum sem tengdir eru tilteknu borgarhverfi. Það er athyglisvert. Ýmsum kann að þykja það til marks um ósiði í umræðuháttum hér á landi og enn eitt dæmið um það hvílíkir asnar Íslendingar séu (með hinni óhjákvæmilegu tilvitnun í Steinar Sigurjónsson um að Íslendingar séu hænsn) – en ég er ekki viss um að málið sé svo einfalt. Málið er aldrei einfalt. Málið: orðin sem við notum til að tala saman – og sundur.


Sameiningartákn
„Þegar kaffið kemur inn / kætist okkar sinni. /Undarlegan yl ég finn / orna sálu minni," orti Þormóður Ísfeld Pálsson um kaffið. Blessað kaffið: það er sjálfur þjóðardrykkurinn. Það fylgir okkur frá morgni til kvölds. Það vekur okkur á morgnana og hjálpar okkur að horfast í augu við amstur komandi dags. Það yljar okkur á köldum stundum. Það róar okkur þegar við erum í uppnámi. Það hressir okkur þegar við erum dáðlaus.

Ekkert er hversdagslegra en kaffi; enginn drykkur jafn nátengdur dagsins önn í lífi venjulegs Íslendings. Þetta er drykkur stundarinnar milli stríða. Kaffið er okkar friðarpípa. „Ætlarðu ekki að kíkja bráðum í kaffi?“ segjum við hvert við annað þegar okkur langar að friðmælast eða tengja aftur rofin bönd; við ræðum málin yfir kaffibolla. Slík unaðssæla fylgir áhrifunum að það er óhugsandi að vera í vondu skapi að drekka kaffi. Kaffið er sameiningartákn íslensku þjóðarinnar – það færir okkur saman. Þetta er drykkur samræðu og sáttar, þar fylgir vinátta vellíðan.

Hvernig viltu hafa kaffið? Það segir sína sögu um manninn: fólk sem fær sér mjólk í kaffið vill mýkja bragðið, er makráðara og skrautgjarnara en þau hin sem drekka kaffið svart og sykurlaust – umbúðalaust – stælalaust. Fólk sem drekkur uppáhelling – helst kaffi með þessu gamla moldarbragði sem við kennum við Braga (guð skáldskapar) vill ekkert pjatt og hugsar fyrst og fremst um notagildi matar og drykkjar, að þetta virki eins og það á að virka – og hver segir að þetta þurfi að vera eitthvað bragðgott líka? – og svo eru sumir sem hafa sterkar skoðanir á því hvernig uppáhellingurinn fari fram, allt frá hitastigi vatnsins til þess hvernig kúrfan á kaffinu í trektinni skuli vera.

Kaffið talar. Að kaffibollanum drukknum er saga þín skráð handa þeim sem lesa kann. Þar eru ferðalög, giftingar, fjallgöngur, barnalán og dauðsföll – gæfa og ólán. Það er engin hégómaiðja að drekka kaffi með annarri manneskju. Maður er að samneyta henni, deila með henni líðandi og komandi stundum – lífi sínu.


Sundrungartákn
Ásökunin er þessi: þú vilt ekki drekka með mér kaffi; vilt bara drekka þitt útlenska kaffi með heiti sem ég fatta ekki. Þú býrð til eitthvað ókunnuglegt úr því kunnuglegasta af öllu. Er hægt að hugsa sér meiri uppskafningshátt? Café latte er eintómt pjatt. Það er tákn um yfirborðsmennsku og merkilegheit. Það er drykkur þess sem leitar út en ekki inn, leitar að sjálfsmynd sinni í evrópskri menningu í stað þess að finna hana inni í sér, í stuðlum og höfuðstöfum, pelastikki og bragðvondu kaffi. Það er drykkur þess sem yfirgaf. Þess sem segir: ég er kominn lengra en þú, drekk öðruvísi kaffi en þú; það heitir útlensku nafni sem þú skilur ekki og það er mjög fínt. Caffé latte er drykkur froðusnakksins, enda einkum mjólkurfroða og ekkert inntak; það er drykkur letingjans, maður verður saddur og latur af því að drekka það en ekki hress og æstur í að fara að djöflast.

Nei nei. Þetta er í raun og veru alþýðlegt mjólkurkaffi drukkið úr glasi, eins og maður man eftir í sveitinni þar sem kexi var dýft ofan í það. Kaffi sem hefur verið umvafið orðum. Bærinn er skrýtinn, hann er fullur af orðum.

Við brosum yfir mynstrinu sem gert hefur verið á mjólkurfroðuna og súpum svo varlega á og finnum þykka og mjúka froðuna gæla við varirnar og síðan dökkt og bragðmikið kaffibragðið sem leynist þar undir. Við finnum að Reykjavík er alls konar, stundum meira að segja borg; hér eru núðlustaðir og skóbúðir, snyrtifræðingar, rapparar og gangandi vegfarendur. Og letingjar. Og fólk sem talar með handasveiflum, fólk með alls konar göngulag, alls konar fólk sem fæddist á alls konar stöðum en á hér heima; alls konar litir og – auðvitað – alls konar orð. Því að útlönd hafa alltaf verið á Íslandi og íslensk menning sem er ekki um leið útlensk menning – hún deyr.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fastir pennar 24. maí 2013 06:00

Úps, við sulluðum niður

Fréttablaðið sagði í lok marz frá miklum áhyggjum heilbrigðisnefnda sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og framkvæmdastjórnar um vatnsvernd á svæðinu af áformum um aukin umsvif á Bláfjallasvæðinu. Meira
Fastir pennar 24. maí 2013 06:00

Styttum kennaranámið

Kartöflubóndi ætlar að prófa nýja ræktunaraðferð. Nýja aðferðin er 70% dýrari en sú gamla. Kartöflurnar munu vera lengur að vaxa en þær eiga að vera gæðameiri og þar með dýrari fyrir vikið. Bóndinn er... Meira
Fastir pennar 23. maí 2013 06:00

Hrifla og heimurinn

Margt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar bendir til að hún geti staðið undir því markmiði sínu að hefja "nýja sókn í þágu lands og þjóðar“. Meira
Fastir pennar 22. maí 2013 06:00

Eru mannasiðir voðalega 2007?

Dónaskapur, illmælgi, hótanir og heimska þeirra sem virkastir eru í athugasemdum við fréttir vefmiðlanna hafa verið í sviðsljósinu undanfarið. Meira
Fastir pennar 21. maí 2013 09:30

Genin mín, genin þín og "tæknilæknisfræði“

Mikið hefur verið rætt um gen og áhrif þeirra á myndun sjúkdóma undanfarna daga í fjölmiðlum og sitt sýnist hverjum. Meira
Fastir pennar 21. maí 2013 07:00

Transfólk kemur út úr skápnum

Konum á Íslandi fjölgaði um fimm í síðustu viku, en körlunum fækkaði að sama skapi. Þannig orðaði sænski skurðlæknirinn Gunnar Kratz það er rætt var við hann í úttekt í helgarblaði Fréttablaðsins. Kra... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 12:00

Vandinn við hvíta lygi

Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 06:00

300 ára gamlar kennsluaðferðir

Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 15:00

Selfoss og Maribo

Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 11:01

Öflugri hópur, betri fréttir

Fréttastofur 365 miðla sameinast í eina. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Júróvísa

Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Tvær frjálsar hendur, slef og tunga

Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí... Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 07:00

Þvingur, lím og stærðfræðijöfnur

Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að. Meira
Fastir pennar 15. maí 2013 09:00

Stokka upp eða láta það springa?

Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums... Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:30

Blindur, brúnn og hrukkóttur

Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna. Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:15

Ofbeldi gegn ófæddum börnum

Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Valfrelsi með humrinum

Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Lækningar fremur en refsingar

Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga. Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

Sumarbústaðir þjóðarinnar

Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek... Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

45.000 fleiri í hvalaskoðun

Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik... Meira
Fastir pennar 09. maí 2013 07:00

Sveitarfélögum fækkað um 62

Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ... Meira
Fastir pennar 08. maí 2013 07:00

Tækifæri í tollalækkun

Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum... Meira
Fastir pennar 07. maí 2013 07:00

Neðrideildarleikur í Noregi

Dómarar í knattspyrnuleikjum meistaradeildar karla fá 156% hærri laun en þeir sem dæma leiki í efstu deild kvenna. Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Kaupum álfinn

Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ.... Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Lærum að leika okkur

Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Latte og annað pjatt
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000