Fótbolti

Lars og Heimir kölluðu á Rúnar Má

Rúnar Már í leik með Val.
Rúnar Már í leik með Val.
Rúnar Már Sigurjónsson verður í íslenska landsliðshópnum sem spilar gegn Eistlandi á morgun.

Aron Einar Gunnarsson og Eiður Smári Guðjohnsen fengu frí frá leiknum. Aron Einar er nýbakaður faðir og kona Eiðs Smára á von á sér.

Áður var búið að kalla á Ólaf Inga Skúlason í hópinn og nú er búið að bæta Rúnari Má við.

Rúnar Már á þrjá landsleiki að baki en hann leikur með sænska liðinu Sundsvall.

Leikurinn á morgun hefst klukkan 16.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×