Landsbankinn: Ekki búið að samþykkja neitt bónuskerfi 16. mars 2010 19:54 Landsbanki Íslands er ekki búinn að samþykkja bónusgreiðslur. „
Umræða um innleiðingu kaupaukakerfis í Landsbankanum er algerlega ótímabær. Ekkert slíkt kerfi hefur verið tekið upp," segir í fréttatilkynningu frá upplýsingafulltrúa Landsbanka Íslands vegna frétta um fyrirhugað bónuskerfi sem þar á að taka upp og hefur vakið gríðarlega sterk viðbrögð í samfélaginu. Í yfirlýsingunni segir ennfremur að bankaráð Landsbankans hafi ekki fjallað um slíkt kerfi og engin útfærsla verið samþykkt. Þá er fullyrt í yfirlýsingunni að það sé alrangt hjá formanni viðskiptanefndar Alþingis að búið sé að semja um kaupaukakerfi fyrir æðstu stjórnendur. Svo segir orðrétt: „Að frumkvæði kröfuhafa var gert samkomulag á milli skilanefndar Landsbanka Íslands hf. (gamla bankans), fjármálaráðuneytisins f.h. ríkissjóðs og Landsbankans (NBI hf.) um að hluti hlutabréfa í NBI hf. sem skilanefndin heldur nú á, myndi stofn fyrir kaupaukakerfi sem næði til allra starfsmanna og kæmi til framkvæmda á löngum tíma. Fjöldi þeirra hlutabréfa sem myndar stofninn ræðst af hugsanlegri verðmætaaukningu tiltekins hluta eignasafns bankans. Hugsanlegt er því að kaupaukakerfi taki gildi eftir að þessi hluti eignasafns bankans hefur verið endurmetinn í árslok 2012 eins og gert er ráð fyrir í samningunum. Í þessu eignasafni eru engin einstaklingslán, svo sem hefðbundin íbúðalán, heldur eingöngu stærri lán til fyrirtækja þar sem mikil óvissa ríkir um verðmætið og miklu skiptir hvernig unnið er úr. Ekkert er hæft í því að starfsmenn fái kaupauka fyrir að ganga hart fram gagnvart skuldurum. Þvert á móti. Framtíðarhagur Landsbankans og þar með verðmæti hlutabréfa í bankanum mun endurspeglast í traustum rekstri fyrirtækja sem vonandi verða viðskiptavinir bankans um langa hríð. Hagur atvinnulífsins og bankans fara því saman að þessu leytinu."
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira