Landið, fólkið, tungan og tæknin

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 18. janúar 2012 12:00
Jarðlag í tímanum eftir Hannes Pétursson.
Jarðlag í tímanum eftir Hannes Pétursson.
Friðrika Benónýsdóttir skrifar:
Bókmenntir. Jarðlag í tímanum - Minningamyndir úr barnæsku. Hannes Pétursson. Opna.

Hannes Pétursson hefur frá upphafi ferils síns verið þekktur fyrir kröftugt og litríkt tungutak og næmni á sögu, fólk og náttúru. Á það jafnt við um ljóð hans og prósa og minningabrotin Jarðlag í tímanum eru engin lykkja á þeirri leið.

Hér lýsir skáldið uppvaxtarárum sínum á Sauðárkróki fyrir miðja síðustu öld, bregður upp myndum af staðháttum, náttúru, híbýlum og fólkinu sem plássið byggir. Sá heimur sem hann lýsir er nútímalesanda nánast eins framandi og heimur Íslendingasagna: Sjávarkauptún með dönskum blæ, þar sem sýslumaðurinn sprangar um í fullum embættisskrúða, skrifstofumenn vinna á fleiri en einni skrifstofu, konur klæðast betri fötum seinni part dags og daglaunamenn safnast saman á götuhornum í lok vinnudags og spjalla. Allt þetta minnir fremur á norrænar kvikmyndir sem gerast eiga um síðustu aldamót en íslenskan raunveruleika.

Eitt er þó óbreytt. Uppgötvanir barnsins á umhverfi sínu og veruleika virðast ekki taka mið af umhverfi og staðháttum heldur eigin huga og þeirri barnslegu sýn að heimurinn sé undraland þar sem ævintýrin leynast við hvert fótmál og stuttur göngutúr býður upp á óvæntar uppákomur og nýjar uppgötvanir. Lýsingarnar á heimi barnsins eru það sem upp úr stendur að lestri bókarinnar loknum og hefðu að ósekju mátt fá meira rúm á kostnað lýsinga á umhverfi, staðháttum og fólkinu í kauptúni og sveit, þótt þær lýsingar séu sannarlega listavel gerðar og opni lesanda nýjan heim. Margt af því sem þar kemur fram mætti flokka sem þjóðlegan fróðleik. Hér er til haga haldið ýmsum þáttum úr daglegu lífi Íslendinga á horfinni öld þegar veröldin sem var stóð á hengiflugi breytinganna.

Það er fleira en heimurinn sem bókin lýsir sem tilheyrir horfnum tíma. Tungumálið er gullaldartungumál íslenska sveitasamfélagsins og aftur og aftur grípur lesandi andann á lofti yfir krafti og fegurð þessa tungutaks, sem er eins langt frá því að vera uppskrúfað og mögulega er hægt að komast. Hver hugsun er fullkomlega mótuð og skilað í einföldum, knöppum stíl þar sem hvert orð hefur vægi. Svona texti sést ekki lengur á prenti, hvað þá að þetta tungumál heyrist í daglegu tali. Eiginlega ætti að skylda alla sem senda frá sér texta á íslensku til að lesa þessa bók og lesa hana vel. Melta hverja setningu og skynja þá möguleika sem tungumálið býður upp á.

Niðurstaða: Blanda af þjóðlegum fróðleik og minningabrotum úr heimi barns á öndverðri síðustu öld. Gullaldartexti sem ætti að vera skyldulesning.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 25. maí. 2012 12:00

Alltumlykjandi og áhrifarík

Sigur Rós tekur stóra beygju með rólegri og hrífandi plötu. Á heildina litið er Valtari fí...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Landið, fólkið, tungan og tæknin