Innlent

Landflótti eykst á ný

Höskuldur Kári Schram skrifar
Fólksflótti frá Íslandi er að aukast á ný. Þetta sýna tölur Hagstofunnar. Verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun segir suma vera að flýja ástandið hér heima en uppbókað er í námskeið sem kennir fólki að flytja til Norðurlanda.

Þúsundir Íslendinga fluttu til útlanda á árunum í kringum hrun meðal annars útaf ástandinu á vinnumarkaði en á tímabili mældist atvinnuleysi um tíu prósent.

Tæplega ellefu þúsund Íslendingar hafa flutt til útlanda frá aldamótum sé horft á fjölda brottfluttra umfram aðflutta. Verulega dró úr landflótta á árinu 2013 en hann jókst ný í fyrra þegar 760 fleiri Íslendingar fluttu frá landinu en til þess. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs var talan komin upp í 370 samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í dag.

Vinnumálastofnun aðstoðar fólk sem vill finna atvinnu í útlöndum en Þóra Ágústsdóttir verkefnastjóri hjá stofnuninni segir að um sé að ræða fólk á öllum aldri.

„Það var ofboðslega mikil aukning fyrst eftir hrun 2009 og 2010. Svo hefur þetta minnkað en þetta er orðið nokkuð stöðugt núna og er búið að vera í nokkur ár,“ segir Þóra.

Flestir eru að leita eftir vinnu í Noregi en þar á eftir kemur Danmörk og Svíþjóð. Þóra segir að fólk nefni ýmsar ástæður fyrir því afhverju það kýs að flytja til útlanda.

„Sumir segja að þeir séu einfaldlega að gefast upp, finnst þetta of erfitt. Aðrir eru með ævintýraþrá og vilja bara breyta til,“ segir Þóra.

Vinnumálastofnun hefur í samstarfi við Norræna félagið á Íslandi boðið upp á námskeið fyrir fólk sem vill flytja til Norðurlanda. Uppbókað var á námskeið sem var haldið í dag og um fimmtán manns á biðlista. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×