Innlent

Lán frá AGS dregst líklega til loka ágúst

Heildarlánveiting AGS til Íslands nemur 2,1 milljarðs dollara. Í nóvember voru greiddar 827 milljónir dala og átti afgangurinn að greiðast í átta jöfnum greiðslum. Mynd/Vilhelm
Heildarlánveiting AGS til Íslands nemur 2,1 milljarðs dollara. Í nóvember voru greiddar 827 milljónir dala og átti afgangurinn að greiðast í átta jöfnum greiðslum. Mynd/Vilhelm

Líklegast er að fyrirgreiðsla frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) frestist fram til loka ágúst. Taka á málefni Íslands fyrir hjá AGS næsta mánudag, 3. ágúst. Stjórnarliðar segja ástæðu frestunarinnar vera að ekki hafi náðst að klára Icesave-málið, sem ekki verður rætt fyrr en í fyrsta lagi 4. ágúst. Aðrar heimildir Fréttablaðsins herma að ástæðan sé líklega sú að ekki sé búið að ljúka endurfjármögnun bankanna, sem ljúka átti í febrúar. Eftir fund AGS 3. ágúst fer sjóðurinn í hlé til ágústloka.

En setur AGS það skilyrði að Icesave-málinu verði lokið? „Það liggur í loftinu að Icesave er aðalhindrunin í veginum og þá verða menn bara að horfast í augu við það," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Samkomulag náðist milli Íslands og AGS í nóvember um 2,1 milljarðs dollara lán til Íslands, sem er um 265 milljarðar króna. Fyrsti hluti lánsins var greiddur út í nóvember og átti afgangurinn að greiðast í átta afborgunum á þriggja mánaða fresti. Engar greiðslur hafa borist frá því í nóvember en fyrirgreiðslur, sem og endurskoðun áætlunar AGS og Íslands, áttu að vera í febrúar og maí en hefur verið frestað tvisvar.

„Eins og stendur þá vonum við enn að fyrirgreiðslan geti átt sér stað. Eitt er hins vegar víst að allt er klárt af hálfu íslenskra stjórnvalda og það höfum við fengið staðfest hjá AGS. Það er þá eitthvað annað en það sem snertir íslensk stjórnvöld sem kæmi í veg fyrir málið," segir Steingrímur. Drátturinn sem yrði ef ekki væri hægt að ljúka þessu á mánudag er bagalegur, að mati Steingríms því AGS fari í frí til loka ágúst.

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir nefndina vinna að Icesave-samningnum óháð samvinnu við AGS. „Við gerðum okkur grein fyrir að 3. ágúst væri umsagnardagur en ákváðum að taka okkur þann tíma sem við þurfum í þetta," segir Guðbjartur.

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í efnahags- og skattanefnd, segir það skipta litlu hvað peninga varðar ef áætluninni seinkar. Þeir peningar myndu ekki kippa öllu í liðinn. „Þetta er hins vegar bagalegt upp á orðspor og annað slíkt að þetta dragist í sífellu," segir Tryggvi.

Ekki náðist í Franek Rozwadowski, fulltrúa AGS á Íslandi, við vinnslu fréttarinnar í gær.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×