Enski boltinn

Lambert framlengdi til 2018

Paul Lambert.
Paul Lambert. vísir/getty
Aston Villa hefur komið mörgum á óvart með góðri frammistöðu í upphafi móts í enska boltanum. Félagið hefur nú ákveðið að verðlauna stjórann, Paul Lambert.

Hann fékk nýtt samningstilboð sem hann er búinn að skrifa undir. Samningurinn er til ársins 2018.

Skotinn tók við liðinu sumarið 2012 og hafnaði Villa í 15. sæti deildarinnar fyrstu tvö árin undir hans stjórn. Villa er síðan búið að vinna þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum í vetur.

„Ég er sannfærður um að við getum byggt ofan á þennan árangur og komið félaginu þangað sem við viljum koma því," sagði Lambert.

Villa er eitt þriggja liða í ensku úrvalsdeildinni sem hefur ekki tapað leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×