Enski boltinn

Lallana hjá Liverpool til 2020

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lallana og Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, handsala samninginn.
Lallana og Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, handsala samninginn. vísir/getty
Adam Lallana hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarliðið Liverpool. Talið er að nýi samningurinn færi honum 110.000 pund í vikulaun.

Lallana kom til Liverpool frá Southampton sumarið 2014 og hefur síðan leikið 80 deildarleiki fyrir Rauða herinn og skorað 16 mörk.

Lallana, sem er 28 ára, hefur verið einn besti leikmaður Liverpool á tímabilinu. Hann er kominn með sjö mörk í 19 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Lallana hefur leikið 29 landsleiki fyrir England og skorað þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×