Fótbolti

Lagerbäck valdi samherja Ragnars sem næsta fyrirliða Noregs

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lars Lagerbäck fann norska Aron Einar.
Lars Lagerbäck fann norska Aron Einar. vísir/getty
Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta sem hefur tekið að sér það vandasama verkefni að þjálfa Noreg næstu árin, er búinn að finna næsta fyrirliða norska landsliðsins.

Lagerbäck valdi Stefan Johansen, miðjumann Fulham í ensku B-deildinni, til að bera fyrirliðabandið í sinni stjórnartíð en leikmenn norska liðsins klöppuðu fyrir nýja fyrirliðanum þegar þetta var tilkynnt á æfingu í morgun. TV2 greinir frá.

Sjá einnig:Lagerbäck ekki búinn að finna sinn Aron Einar í norska landsliðinu

Stefan Johansen er 26 ára gamall leikmaður sem varð meistari með Strömsgodset árið 2013 en sama ár var hann valinn besti miðjumaður deildarinnar sem og að hljóta útnefninguna besti leikmaður Noregs.

Hann fylgdi þjálfara sínum Ronney Deila til Celtic í skosku úrvalsdeildinni þar sem hann fagnaði skoska meistaratitlinum í þrígang áður en Fulham keypti hann fyrir yfirstandandi leiktíð. Þar er hann samherji íslenska landsliðsmannsins Ragnars Sigurðssonar.

Johansen er af flestum talinn besti leikmaður Noregs í dag en hann á að baki 33 landsleiki og þrjú mörk. Eitt þeirra skoraði hann á móti Íslandi í 3-2 sigri í vináttuleik í júní á síðasta ári.

„Það er enginn meiri náttúrlegur leiðtogi en Johansen í norska liðinu núna. Þetta er góður kostur. Hann er góður utan vallar og talar tungumál sem fólk skilur. Það er mjög eðlilegt að hann fékk þetta hlutverk,“ segir Jesper Mathiesen, sérfræðingur TV2.

Johansen leiðir norska liðið í fyrsta sinn út á völlinn í Belfast þegar það mætir Norður-Írlandi á sunnudagskvöldið en fyrsti leikur Lars Lagerbäck sem þjálfari norska landsliðsins verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×