Lífið

Lætur ekkert stoppa sig

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Sigurvegari Eurovision, Måns Zelmerlöw, hefur í nógu að snúast.
Sigurvegari Eurovision, Måns Zelmerlöw, hefur í nógu að snúast. Vísir
Sigurvegari Eurovision, Måns Zelmerlöw, birti mynd af sér á Instagram-síðu sinni, þar sem hann var með hækjur. Ástæðan er sýking í vinstra hné, en hann lét það ekki stoppa sig frá því að fljúga til London og koma fram í morgunþættinum ITV This Morning.

Hann er nú á tónleikaferðalagi sem hann kallar Heroes Tour og mun þar meðal annars kynna plötuna sína Perfectly Damaged sem kemur út 5. júní. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×