Kynlífssvelti er óspennandi vopn

Fréttablaðið Fastir pennar 12. janúar 2012 20:00
Sigga Dögg kynlífsfræðingur.
Sigga Dögg kynlífsfræðingur.
Sigga Dögg skrifar:
Spurning:
Mér leikur forvitni á að vita hvort það sé til afmælisgjöf fyrir frúna sem kryddar upp á kynlífið sem má samt opna fyrir framan tengdaforeldrana á afmælisdaginn?

Svar:
Nú eru góð ráð dýr! Eru tengdaforeldrarnir húmoristar og sæju kímnina í einum ílöngum titrara?

Ef þig langar í rafknúið tæki þá eru komin á markaðinn mjög smartir titrarar sem líkjast penum nuddtækjum (enda er titrari nuddtæki!). Vinsælasti titrarinn er frá Hitachi og hann var ekki hannaður sem kynlífstól heldur sem herða- og baknuddstæki svo það mætti gjarnan fjárfesta í honum án þess að særa blygðunarkennd viðstaddra. Þá má láta fylgja með lífræna kókosolíu sem má nota innvortis sem útvortis svo hún er góð nuddolía og sleipiefni.

Í rauninni má sjá tvöfalt notagildi í mörgum hlutum. Þannig geta fallegir kertastjakar skapað rómantíska stemningu inni í svefnherbergi. Þú gætir einnig keypt kynlífstæknibók og skipt um bókakápu við settlegri bók svo grunsemdir yrðu að engu. Gjafabréf á hótel gæti einnig verið kjörið því það eitt að breyta um umhverfi getur blásið lífi í loftlaust samlíf. Munúðarfullar gjafir geta einnig verið kynæsandi líkt og fínt kampavín og eðal konfektmolar.

Þá gæti verið sniðugt að láta skriflegar leiðbeiningar fylgja með pakkanum, til dæmis í fallegu korti og þannig má í raun gera hvaða gjöf sem er að kynlífskryddi. Ekki væri verra að láta inneignarmiða í kelerí fylgja með. Leyfðu ímyndunaraflinu að leika lausum hala og hafðu frumlegheitin í fyrirrúmi!


Spurning:

Kanntu gott ráð til að plata kærasta með þér í allsherjarhreingerningu? Má hóta kynlífssvelti? Kærasti minn er bara svo agalega latur og það virðist ekkert duga til að fá hann í stórhreingerningu, matarinnkaup eða annað sem þarf að gera fyrir heimilið.

Svar:
Hér játa ég vanmátt minn því ég þoli ekki þrif og allra síst þrif með metnaði. Ég er þó fylgjandi því að pör hafi verkaskiptingu með heimilisþrifin og þar skuli gæta jafnræðis. Skýr verkaskipting getur dregið verulega úr óþarfa rifrildum.

Á mínu heimili sé ég um þvott, matarinnkaup og eldamennsku. Tilfallandi viðbótarþrif má svo semja sérstaklega um. Þetta er því ekki spurning um að „plata" makann enda er sú nálgun á samskipti innan sambands ekki vænleg. Útskýrðu fyrir viðkomandi af hverju þátttaka hans á heimilinu sé þér mikilvæg. Þetta er ekki spurning um að „nenna" heldur að þið eruð í sambandi og báðir aðilar þurfa að sjá um ákveðna hluti og það er bara þannig, ekkert múður og mas með það.

Kynlífssvelti er undarlegt hugtak enda gefur það til kynna að einn aðili ráði yfir kynlífi sambandsins og kjósi að svelta hinn hungraða og það er ekki spennandi lýsing á samlífi pars. Komdu kærastanum frekar í skilning um að þegar þú ert ánægð í hjartanu (sem þú verður þegar hann tekur virkan þátt í þrifum) þá leiðir sú ánægja niður í píku og enginn þarf að kvarta undan neinu.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Kynlífssvelti er óspennandi vopn