Kynbundinn launamunur innan BHM eykst milli ára Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. júní 2016 10:15 Frá aðgerðum BHM þegar félagið stóð í kjaradeilum við ríkið í fyrra. vísir/Stefán
Kynbundinn launamunur meðal félagsmanna BHM var 11,7 prósent árið 2015 en þetta sýna niðurstöður kjarakönnunar sem nýlega var gerð á vegum bandalagsins. Kynbundinn launamunur innan bandalagsins eykst á milli ára þar sem sambærileg könnun sem gerð var árið 2015, og náði þá til ársins 2014, sýndi að kynbundinn launamunur var 9,4 prósent. Í tilkynningu frá BHM kemur fram að hér sé átt við „þann launamun sem eftir stendur þegar laun beggja kynja hafa verið uppfærð miðað við 100% starf og leiðrétt hefur verið fyrir áhrifum ýmissa þátta á heildargreiðslur, s.s. mismunandi starfshlutfalls og vinnustunda-fjölda, menntunar, aldurs og ábyrgðar í starfi. Nánar tiltekið þýðir þetta að laun kvenna innan BHM hefðu að jafnaði þurft að vera 11,7% hærri en þau voru árið 2015 til að vera jöfn launum karlanna.“ Þá mældist óleiðréttur launamunur kynja tæplega 18 prósent, það er heildargreiðslur til karla voru að jafnaði um 18 prósent hærri en til kvenna þegar laun höfðu verið uppfærð miðað við 100% starf. Könnunin var gerð af fyrirtækinu Maskínu í mars og apríl sl. og náði til félagsmanna BHM sem voru í starfi 1. nóvember 2015, rúmlega 12.000 manns. Svarendur voru um 4.800 og var svarhlutfallið því um 40% af þýðinu.
Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Erlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Innlent Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Innlent Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Innlent Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Fleiri fréttir Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Sjá meira