Körfubolti

Kvennalið Stjörnunnar fær leikmenn úr Haukum, Keflavík og Val

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frá undirritun samninga.
Frá undirritun samninga. Mynd/Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar
Stjörnukonur hafa fengið liðstyrk fyrir komandi tímabil í Domino´s deild kvenna sem verður aðeins annað tímabil liðsins í sögunni í efstu deild.

Stjörnuliðið verður án Margrétar Köru Sturludóttur sem er í barnsburðarleyfi á komandi leiktíð en Garðbæingar sömdu á dögunum við níu leikmenn. Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem kom fram að liðið sé að fá liðstyrk frá Domino´s deildarliðum Hauka, Keflavíkur og Vals.

Sex af þessum níu leikmönnum eru að endurnýja samninga sína en það eru þær Bryndís Hanna Hreinsdóttir, Erla Dís Þórsdóttir, Hafrún Hálfdánardóttir, Helena Mikaelsdóttir, Kristín Fjóla Reynisdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir.

Nýju leikmennirnir eru aftur á móti bakvörðurinn Bríet Sif Hinriksdóttir (úr Keflavík), bakvörðurinn Jónína Þórdís Karlsdóttir (úr Val) og miðherjinn Sunna Margrét Eyjólfsdóttir (frá Haukum). Allar eru þær ungir leikmenn en Bríet Sif Hinriksdóttir hefur langmestu reynsluna úr efstu deild. Jónína Þórdís fékk smá smjörþef af deildinni hjá Val á síðasta tímabili en Sunna Margrét Eyjólfsdóttir mun stíga sína fyrstu skref í deild þeirra bestu næsta vetur.

Oddur Benediktsson, sem þjálfari lið Hamars í Domnino´s deildinni á síðasta tímabili hefur nú ráðið sig sem  aðstoðarþjálfari Péturs Más Sigurðssonar hjá kvennaliði Stjörnunnar. Hamar hefur lagt niður meistaraflokk kvenna en Njarðvík tók sæti liðsins í Domino´s deildinni.



Níu leikmenn skrifa undir í Garðabæ

Í vikunni skrifaði körfuknattleiksdeild Stjörnunnar undir samning við níu leikmenn hjá meistaraflokki kvenna en undirskriftin átti sér stað í Mathúsi Garðabæjar. Bryndís Hanna Hreinsdóttir, Erla Dís Þórsdóttir, Hafrún Hálfdánardóttir, Helena Mikaelsdóttir, Kristín Fjóla Reynisdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir er spiluðu með liðinu á sínu fyrsta ári í efstu deild síðasta vetur munu allar halda áfram með Stjörnunni.

Síðan bættust þrír nýir leikmenn í hóp Stjörnunnar en það eru þær Bríet Sif Hinriksdóttir úr Keflavík, Jónína Þórdís Karlsdóttir úr Val og Sunna Margrét Eyjólfsdóttir úr Haukum. Bríet Sif og Jónína Þórdís hafa báðar spilað ungingalandsleiki fyrir Íslands hönd og Sunna Margrét er ung og efnilegur leikmaður sem er nú komin aftur heim í Stjörnuna.

Á sama tíma var einnig skrifað undir samning við Odd Benediktsson um að vera aðstoðarþjálfari Péturs með meistaraflokk kvenna næsta vetur en hann þjálfaði meistaraflokk kvenna hjá Hamri síðasta vetur. Stjarnan bíður nýja leikmenn og þjálfara innilega velkomna í Stjörnunna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×