Skoðun

Krónan ó krónan

Friðrik Indriðason skrifar
Það var athyglisvert að fylgjast með umræðunni um krónuna á margumræddri ráðstefnu í Hörpu í gærdag. Þar voru samankomnir margir og miklir spekingar með mismunandi skoðanir á ágæti þeirrar myntar. Er hún bjargvætturinn, eða snákurinn, í grasinu?

Ég er orðinn það gamall að ég man eftir ýmsum útgáfum af krónunni í gegnum tíðina. Líka þeirri sem raunverulega flaut enda úr áli.

Þegar ég var að alast upp voru til fimmkrónu seðlar. Rauðir og fallegir, næstum eins og fimmhundraðkallinn í dag. Að vísu var fimmkrónu seðillinn minni en núverandi fimmhundraðkall. Samt gat maður keypt meira þá fyrir fimmkrónu seðilinn en hægt er fyrir fimmhundraðkallinn í dag. Sem segir kannski allt sem segja þarf.

Þegar ég var að alast upp var hundraðkróna seðill í sínum skærgræna lit raunverulegur peningur. Það voru til þrír seðlar fyrir neðan hann. Fyrrnefndur fimmkrónu seðill og svo tíu- og tuttugu og fimmkróna seðlar. Sá síðastnefndi gerir það að verkum að ég get alltaf svarað í spurningakeppnum þegar spurt er um höfðingja sem hét Magnús á íslensku upplýsingaöldinni.

Fyrir hundraðkrónu seðill var hægt að kaupa gotterí í gamla daga sem dugði í hátt í mánuð. Fyrir gervigullsleginn hundraðkall í dag færðu örfá grömm af blandi í poka. Við erum að komast aftur á sama stig og þarna um árið þegar við skárum tvö núll aftan af krónunni. Þá var gaman. Ég man að ég fór til Kaupmannahafnar nokkrum dögum síðar og tókst í fyrsta og eina skipti í minni sögu að skipta íslenskum seðlum í dönskum banka. Gjaldkerinn lét þess getið á sinni þvottekta Kaupmannahafnarmálýsku hve þessir hundraðkrónu seðlar væru fallegir.

Aðdáendur krónunnar segja að hún hafi bjargað okkur í kreppunni og þeir hafa vissulega nokkuð til síns máls. Hinsvegar skil ég ekki alveg hvernig það eru rök fyrir áframhaldandi tilvist hennar. Nema náttúrulega að þessir spekingar viti fyrir víst að hér verði allt í hári og fári í efnahagsmálum og viðvarandi kreppur næstu áratugina eða aldirnar. Þá er gott að hafa krónuna.

Andstæðingar krónunnar benda á að hún er í rauninni handónýt mynt og þeir hafa vissulega nokkuð til síns máls. Þú getur hvergi skipti henni í aðrar myntir nema með skilyrðum í íslenskum bönkum. Dollurum eða evrum er hægt að skipta nær hvar sem er í heiminum án vandræða. Þar að auki setti krónan þúsundir heimila á hausinn þegar hún féll niður úr gólfinu haustið 2008.

Ég er sum sé fylgjandi því að slá krónuna af. Auðveldasta leiðin til þess er að ganga í Evrópusambandið og taka upp evruna. Þess vegna vil ég fá að kjósa um „pakkann" þegar, eða ef, hann lítur dagsins ljós.






Skoðun

Sjá meira


×