Krónan hækkar heita vatnið

Fréttablaðið Fastir pennar 26. ágúst 2010 08:00
Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins.
Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins.

Gífurlegur fjárhagsvandi Orkuveitu Reykjavíkur hefur mikið verið til umfjöllunar að undanförnu. Fyrirtækið skuldar 240 milljarða króna og afborganir á næstu árum verða tugir milljarða.

Mikið hefur verið fjallað um hvernig fást á við vanda Orkuveitunnar. Það verður annars vegar gert með niðurskurði í rekstri fyrirtækisins - og virðist þar reyndar af nógu að taka - og hins vegar með miklum gjaldskrárhækkunum. Stjórnar-formaðurinn hefur boðað tveggja tölustafa hækkun og margir gera ráð fyrir að rafmagnið og vatnið hækki um u.þ.b. 20%.

Minni gaumur hefur verið gefinn að því hvernig skuldirnar urðu til. Að hluta til er um það að ræða að Orkuveitan reyndi að gína yfir of miklu og missti sjónar á meginhlutverki sínu; að framleiða rafmagn, heitt og kalt vatn og selja það almenningi og fyrirtækjum. Einkum og sér í lagi í tíð Reykjavíkurlistans lét Orkuveitan sér fátt mannlegt óviðkomandi, allt frá risarækjueldi til fjarskiptarekstrar upp á milljarða króna. Allt kostaði það sitt.

Orkuveitan stofnaði jafnframt til mikilla skulda vegna virkjanaframkvæmda, sem voru þó hluti af hefðbundnu hlutverki fyrir-tækisins. Það áttu að geta orðið arðbærar framkvæmdir. Fyrir þeim voru tekin erlend lán, enda verkefnin af þeirri stærðargráðu að þau urðu hvorki fjármögnuð eingöngu á innlendum fjármagnsmarkaði né á íslenzkum vöxtum, sem eru hærri en annars staðar vegna smæðar og áhættu gjaldmiðilsins.

Hrun gjaldmiðilsins er svo einmitt stærsta orsök skuldavanda Orkuveitunnar. Skuldir fyrirtækisins tvöfölduðust um það bil; gengistapið á árinu 2008 reiknaðist 93 milljarðar. Þetta er að sjálfsögðu ekkert einsdæmi. Ótal fyrirtæki og heimili um allt land eru í sömu sporum, að skuldirnar tvöfölduðust vegna hruns gjaldmiðilsins. Afleiðingarnar eru hins vegar svo æpandi í tilfelli Orkuveitunnar vegna stærðar fyrirtækisins og áhrifa á daglegt líf og fjárhag meirihluta landsmanna.

Enn sér ekki fyrir endann á vanda Orkuveitunnar, sem leiðir af því að Ísland býr við veikan og í raun ónýtan gjaldmiðil. Á næstu árum mun fyrirtækið þurfa að endurfjármagna talsvert af skuldum sínum á alþjóðlegum lánamörkuðum. Það mun reynast því erfitt nema tekin verði trúverðug skref í þá átt að koma hér á stöðugleika í gjaldmiðilsmálum, sem gerist tæplega nema tekin verði upp ný mynt. Þetta á að sjálfsögðu við um fleiri fyrirtæki en Orkuveituna.

Hrun krónunnar hefur valdið hruni í lífskjörum almennings. Verðbólgan hefur aukizt, allur innflutningur er dýrari og kaupmátturinn hefur rýrnað. Skuldabyrði allra hefur þyngzt vegna krónuhrunsins, hvort sem fólk er með verðtryggð lán eða gengistryggð. Nú bætast við hækkanir á rafmagns-, vatns- og húshitunar-kostnaði, allt í boði þeirra sem hafa talið og telja enn íslenzku krónuna vera frábæran gjaldmiðil.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Fasteignir
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Krónan hækkar heita vatnið