Körfubolti

Kristófer öflugur í sigri Furman | Marist tapaði þriðja leiknum í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristófer skoraði 18 stig og tók sjö fráköst.
Kristófer skoraði 18 stig og tók sjö fráköst. vísir/getty
Kristófer Acox átti flottan leik þegar Furman vann þriggja stiga sigur á Gardner-Webb, 65-68, í háskólaboltanum í Bandaríkjunum í kvöld.

Kristófer skoraði 18 stig og tók sjö fráköst á þeim 33 mínútum sem hann lék í kvöld. Hann var frákastahæstur og næststigahæstur í liði Furman.

Kristófer hitti úr átta af 12 skotum sínum utan af velli og tvö af fimm vítaskotum hans rötuðu rétta leið.

Kristinn Pálsson skoraði þrjú stig og tók fjögur fráköst þegar Marist steinlá, 64-85, fyrir Jacksonville á heimavelli. Þetta var þriðja tap Marist í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×