Körfubolti

Kristófer með tvær tröllatroðslur | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristófer hefur spilað vel í vetur.
Kristófer hefur spilað vel í vetur. vísir/getty
Kristófer Acox og félagar í Furman unnu sinn áttunda leik í röð þegar þeir báru sigurorð af Samford, 90-73, háskólaboltanum í Bandaríkjunum í nótt.

Kristófer átti góðan leik og skilaði flottum tölum.

Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði 17 stig, tók sjö fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Kristófer hitti úr sjö af 10 skotum sínum utan af velli.

Kristófer var duglegur að láta reyna á körfuhringina og átti tvær kraftmiklar troðslur sem má sjá hér að neðan.

Kristófer hefur spilað vel fyrir Furman í vetur. Hann er með 12,9 stig, 7,3 fráköst og 1,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Skotnýting landsliðsmannsins er 61,5%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×