Kristján Guðmundsson: Með ólíkindum að sigra ekki Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 22. ágúst 2009 18:40 Kristján Guðmundsson
Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur var að vonum svekktur að hafa ekki fengið neitt út úr leiknum gegn KR í dag enda fékk liðið nógu góð færi til að taka að minnsta kosti eitt stig út úr leiknum. "Það er alveg með ólíkindum að við vinnum ekki stórsigur. Að við skulum ekki hafa náð góðri forystu fyrir hlé og þurfa vítaspyrnu í lok hálfleiksins til að brjóta ísinn er með ólíkindum en kannski voru menn að flýta sér of mikið í færunum sem þeir fengu í fyrri hálfeik. Það tók okkur langan tíma að skora þetta mark eftir þrjá markalausa leiki í röð og leikmenn vissu af því og vildu bæta úr. Við fengum gríðarlega mörg færi og eigum að vera vel yfir í hálfleik," sagði Kristján. "Í báðum mörkunum þeirra erum við á leið upp völlinn í sókn en töpum boltanum með kjánalegum ákvörðunum en þetta er ótrúlegt hvernig þessi leikur féll KR í skaut." "Efir að þeir skoruðu og fóru að koma framar á okkur áttum við að moka boltanum yfir miðjuna á framherja okkar en við vorum ekki nógu klókir í því." "Einbeiting fer og Guðmundur fer út úr sinni rútínu sem hann á að framkvæma áður en hann tekur vítaspyrnurnar. Það er bara einbeiting og ekkert annað." Kristján óttast ekki að liðið sé í mikilli niðursveiflu eftir að hafa aðeins náð í eitt stig í fimm leikjum. "Ég held að við getum tekið þennan leik og tekið allt út úr honum. Við búum til fullt af færum og varnarleikurinn var nokkuð góður. Þetta væri allt annað ef við hefðum verið slakara liðið, við vorum miklu betra liðið og náum ekki að vinna. Ég hef ekki áhyggjur af því að við séum að fara að lenda í einhverri svakalegri dýfu. Þetta var vel spilaður leikur af okkur hálfu og við áttum að vera búnir að ganga frá honum í hléinu," sagði Kristján að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik - Stjarnan | Ná Blikar að halda toppsætinu? Fótbolti Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira