Kristín Dagmar ráðin nýr listrænn stjórnandi Gerðarsafns Atli Ísleifsson skrifar 23. október 2014 12:24 Kristín Dagmar Jóhannesdóttir.
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir hefur verið ráðin listrænn stjórnandi Gerðarsafns, listasafns Kópavogs. Kristín Dagmar var valin úr hópi fjörutíu umsækjenda og talin hæfust til að gegna starfinu, að því er segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Starfið var auglýst laust til umsóknar í lok ágúst og er ráðið í það til fimm ára í senn. Kristín Dagmar mun m.a. móta listræna stefnu Gerðarsafns, skipuleggja og halda utan um sýningar þess og faglegt starf, hafa umsjón með listaverkasafni Kópavogsbæjar og annast kaup á listaverkum. Í tilkynningunni segir að Kristín Dagmar hafi hlotið M.A. gráðu í samtímalistfræðum frá Edinburgh College of Art og B.A í listfræði frá Háskóla Íslands. „Hún hefur fjölbreytta reynslu af sýningarstjórnun og stjórnun listrænna verkefna en einnig hefur hún stýrt fræðslustarfi hjá Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands. Meðal sýninga má nefna „Ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn“ í Listasafni Reykjavíkur - Ásmundarsafni og „Að elta fólk og drekka mjólk“ sem sett var upp í Hafnarborg. Hún var listrænn stjórnandi Sequences Art Festival í Reykjavík og er stundakennari við Listaháskóla Íslands. Nýverið ritstýrði hún bók um ljósmyndaverk Sigurðar Guðmundssonar, Dancing Horizon, sem gefin var út af Crymogeu fyrr í mánuðinum.“ Gerðarsafn var opnað árið 1994 og stendur á Borgarholtinu ásamt Salnum, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Bókasafni Kópavogs og Tónlistarsafni Íslands. Skammt undan er Héraðsskjalasafn Kópavogs. Starfsemi þessara húsa tilheyrir Listhúsi Kópavogsbæjar en þar er nú unnið að stefnumótun fyrir menningarstarf bæjarins í heild.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira