Körfubolti

KR úr leik í Evrópu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Úr fyrri leik liðanna í Vesturbænum
Úr fyrri leik liðanna í Vesturbænum vísir/eyþór
Þáttöku KR í Evrópukeppni er lokið þennan veturinn eftir 84-71 tap fyrir Belfius Mons-Hainaut í seinni leik liðanna í undankeppni Evrópukeppni FIBA í körfubolta.

Fyrri leikur liðanna fór 67-88 í Frostaskjólinu, svo KR tapaði því samanlagt 172-138.

Jón Arnór Stefánsson var atkvæðamestur KR-inga með 20 stig, 5 fráköst og 2 stoðsendingar. Næstur kom Darri Hilmarsson með 17 stig og 2 fráköst.

KR hélt í við Belgana lungann úr leiknum, en staðan var 41-38 í hálfleik. Belgarnir settu svo fótinn á bensíngjöfina á síðustu mínútunum og tryggðu öruggan sigur sinn.


Tengdar fréttir

Jón Arnór: Hræðileg stemning á leiknum

Jón Arnór Stefánsson, einn af lykilmönnum KR, sendi stuðningsmönnum liðsins tóninn eftir tap KR í Evrópubikarnum gegn Belfius á heimavelli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×