Kostnaður krónu

Fréttablaðið Fastir pennar 30. janúar 2012 06:00
Þórður Snær Júlíusson
thordur@frettabladid.is
Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is
Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. Í henni kom fram að verð á dagvöru, sem samanstendur af helstu nauðsynjavörum heimila, hefði hækkað um 60% á síðustu sex árum. Sú verðhækkun skýrist ekki af aukinni álagningu verslana á vörunum, heldur fyrst og fremst af ytri ástæðum, aðallega gengishruni íslensku krónunnar. Hún hefur rýrnað um meira en helming gagnvart evru á umræddu tímabili.

Í skýrslunni segir orðrétt að „eftir gengislækkun krónunnar hefur matvöruverð á Íslandi færst frá því að vera hlutfallslega mun hærra til þess að vera því sem næst jafnt meðalmatvöruverði í ESB löndum, mælt í evrum á skráðu gengi. Í krónum talið hækkaði matvöruverð hins vegar gífurlega eftir hrunið".

Samkvæmt skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands birti nýverið voru um 88% allra húsnæðislána í byrjun október síðastliðnum verðtryggð. Ársverðbólga mælist nú 6,5% sem hefur bein hækkunaráhrif á höfuðstól verðtryggðra lána. Hún er hvergi meiri innan EES-svæðisins. Óhætt er því að draga þá ályktun að krónan sé að valda íslenskum skuldurum miklu tjóni. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um tæp 30% í dollurum talið frá byrjun árs 2008. Á sama tíma hefur smásöluverð á bensíni á Íslandi hækkað um 75%,í krónum talið, enda bensínið innflutt.

Samhliða ofangreindu hafa ráðstöfunartekjur Íslendinga eðlilega lækkað mun meira í hlutfallslegum samanburði við Evrópusambandslönd og kaupmáttur launa dregist saman. Hagur almennings hefur versnað til muna vegna krónunnar. Við slíkar aðstæður mætti ætla að framtíðar-peningamálastefna, og á hvaða gjaldmiðli hún ætti að byggja, hefðu verið helsta mál á dagskrá hérlendis síðustu þrjú árin. Því fer þó fjarri. Íslendingum hefur í raun tekist að rífast um nánast allt annað en það sem hefur mest áhrif á okkur.

Krónan hefur alltaf verið vandamál. Þegar Íslandsbanki hinn fyrsti var stofnaður árið 1924 fékkst ein íslensk króna fyrir hverja danska. Í dag þarf tæplega tvö þúsund og tvö hundruð íslenskar krónur til að kaupa eina danska, að teknu tilliti til þess að tvö núll voru fjarlægð aftan af þeirri íslensku árið 1981. Við rekum peningastefnu sem snýst um að halda verðbólgu innan við 2,5%, sem tekst nánast aldrei. Helsti kosturinn sem nefndur er við þetta fyrirkomulag er sá að þegar hagstjórnarafleikir stjórnmálamanna hafa komið okkur í nægilega vond mál þá sé hægt að fella gengið. Við það færast peningar frá heimilunum til útflutningsaðila og vöruskiptajöfnuði er náð líkt og töfrasprota sé veifað.

Samt er umræða um málið í lamasessi. Eini flokkurinn sem er með upptöku annars gjaldmiðils á stefnuskránni er í stjórnarsamstarfi við annan sem hefur algjörlega andstæða skoðun á málinu. Stærstu stjórnarandstöðuflokkarnir virðast líka kjósa óbreytt ástand og því virðist mikill pólitískur meirihluti fyrir því að halda krónunni. Viðkvæðið er þá að þessari kynslóð stjórnmálamanna muni takast það sem aldrei áður hefur tekist í íslenskri hagsögu, að halda krónunni í skefjum. Íslenskir neytendur þurfa hins vegar, í ljósi ofangreindra atriða, að gera upp við sig hvort buddan heimili þeim að trúa slíkum málflutningi.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Kostnaður krónu