Handbolti

Könguló og ískaldur klefi stoppaði ekki Valsmenn í Svartfjallalandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Valsmenn fagna í Svartfjallalandi.
Valsmenn fagna í Svartfjallalandi. mynd/valur
Valur komst í gær í átta liða úrslit Áskorendabikars Evrópu í handbolta þegar liðið gerði jafn­tefli, 24-24, við svartfellska liðið RK Partizan ytra. Fyrri leikurinn fór fram á sama stað á laugardaginn og þá varð jafnt, 21-21. Valur fór því áfram, samanlagt 45-45, á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

„Við sýndum alveg fáránlega góðan karkater að klára þetta undir lokin,“ segir Anton Rúnarsson, leikstjórnandi Vals, en Fréttablaðið náði í hann skömmu eftir leik. Valsmenn voru 23-21 undir þegar fimm mínútur voru eftir en sneru dæminu við. Anton skoraði 24. markið sem kom Hlíðarendaliðinu áfram.

„Það var svakaleg harka í þessum leikjum. Dómararnir leyfðu mikið og því lítið skorað enda héldu þeir hraðanum niðri. Þeir börðu mann alveg hægri vinstri en sjaldnast var eitthvað dæmt. Þeir komu okkur á óvart með góðum varnarleik. Þetta er hörku gott lið en bara frábært hjá okkur að komast áfram,“ segir Anton.

Eins og svo oft þegar ferðast þarf austarlega í álfunni til að spila handboltaleiki er eitthvað ákaflega sérstakt sem kemur upp á umgjörðinni.

„Þetta var einn mesti brandari sem ég hef lent í. Það var könguló á veggnum inni í búningsklefa og hann var ískaldur. Það var ekkert kveikt á hitanum heldur kom maður með ferðahitara. Við létum þó hvorki þetta né dómarana fara í taugarnar á okkur,“ segir Anton Rúnarsson.

Valsliðið heldur nú í langt ferðalag heim til Íslands með rútuferð til Króatíu og viðkomu í London. Valsmenn þurfa að komast fljótt niður á jörðina því þeir eiga leik á móti FH í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×