Innlent

Kolröng leið farin með frumvarpi um náttúrupassa

Linda Blöndal skrifar
Óskar Magnússon segir að verið sé að flækja hlutina og leggja í mikið ríkisbákn.
Óskar Magnússon segir að verið sé að flækja hlutina og leggja í mikið ríkisbákn. Vísir/Anton
Eigendur Kersins í Grímsnesi segja að í frumvarpi um náttúrupassa sé farin kolröng leið. Óskar Magnússon, talsmaður eigendanna gagnrýnir harðlega þá leið sem fyrirhuguð er að fara og undrast að ráðherra Sjálfstæðisflokksins ætli að stofna mikið ríkisbákn um náttúrupassa.

Formaður samtaka landeigenda, Örn Bergsson, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að í frumvarpinu sem Ragnheiður Elín Árnadóttir mælti fyrir á alþingi í vikunni, væri staða landeigenda mjög óljós. Ýmsir af fjölsóttum ferðamannstöðum eru í einkaeigu, líkt og Kerið í Grímsnesi.

„Við teljum að það eigi að innheimta gjald en fyrst og fremst vildum við að það yrði gert af þeim sem stunda atvinnurekstur á þessar náttúruperlur. Sem sagt að hafa aðgreiningu á þessu og segja, að þeir sem stunda atvinnustarfsemi og gera út á náttúruperlur, hvort sem þær eru í eigu ríkisins eða einkaeigu, þeir eiga að borga. Almenningur á ekki að borga. En það mætti mikill mótspyrnu og við enduðum svo áþví að fimm árum seinna að hefja almenna gjaldtöku,“ segir Óskar.

Árið 2008 fóru eigendur Kersins með ferðamálayfirvöldum og Umhverfisstofunun um Kersvæðið og var samdóma álit allra um að svæðið væri vanhirt og í slæmu ástandi, en það er friðlýst og á náttúruminjaskrá. Eigendur lögðu hópferðabann við kerið sama ár sem varð umdeilt.

Óskar segir þá að hinn lögbundna almannarétt um frjálsa för um landið verði að virða en ekki nota í viðskiptalegum tilgangi.„Það er hinn svokallaði almannaréttur sem er mikilvægur. Almannaréttur er ekki það sama og óheftur aðgangur fyrir ryksugurútuútgerðir að náttúruperlum eins og menn vilja hafa hér. Það á að virða hann og leyfa venjulegu fólki, einkaaðilum, íslenskum almenningi, að koma á sínum prívat bílum og skoða náttúruperlurnar.“

Um leiðina sem kynnt er í frumvarpi um náttúrupassa segir Óskar að farið sé verið að flækja hlutina og leggja í mikið ríkisbákn.

Hlusta má á alla fréttina í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir

Náttúran megi ekki liggja undir skemmdum

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem jafnframt er ráðherra ferðamála, mælti fyrir frumvarpi um náttúrupassa á Alþingi í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×