Fótbolti

Kolbeinn spilaði allan leikinn í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kolbeinn spilaði allan leikinn í dag.
Kolbeinn spilaði allan leikinn í dag. Vísir/Getty
Ricardo van Rhijn var hetja Ajax í nágrannaslagnum gegn Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni í dag.

Eina mark leiksins kom eftir fimm mínútna leik, en markið skoraði áðurnefndur Ricardo van Rhijn með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu.

Kolbeinn Sigþórsson spilaði allan leikinn fyrir Ajax sem fór með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar, en eru þeir með tólf stig eftir sex leiki.

Feyenoord er í fimmtánda sæti með fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×