Enski boltinn

Klúðruðu tveimur vítaspyrnum en unnu samt sem áður

Stefán Árni Pálsson skrifar
Morgan Schneiderlin skoraði mark fyrir Everton í dag.
Morgan Schneiderlin skoraði mark fyrir Everton í dag. vísir/getty
Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og var mesta fjörið í leik Bournemouth og West Ham United sem Bournemouth vann 3-2.

Joshua King skoraði þrenna fyrir Bournemouth í leiknum og náði auk þess að misnota vítaspyrnu og Benik Afobe misnotaði einnig víti fyrir heimamenn.

Michail Antonio kom West Ham yfir í leiknum eftir tíu mínútna leik. Andre Ayew náði að minnka muninn fyrir West Ham á 90. mínútu en Bournemouth náði í stigin þrjú.

Everton rúllaði yfir WBA, 3-0, með mörkum frá Kevin Mirallas, Morgan Schneiderlin og Romelu Lukaku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×