Enski boltinn

Klopp sló í gegn á blaðamannafundi | Ég er sá venjulegi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Jürgen Klopp sat fyrir svörum á sínum fyrsta blaðamannafundi sem knattspyrnustjóri Liverpool í morgun. Eins og búast mátti við var fundurinn líflegur og lét Klopp mörg stórskemmtileg ummæli falla.

Klopp var minntur á að þegar Jose Mourinho var fyrst ráðinn til Chelsea sagðist hann vera „sá sérstaki“ eins og margfrægt er orðið. Klopp var því beðinn um að lýsa sjálfum sér.

Sjá einnig:Þetta er ástríðan sem stuðningsmenn Liverpool eiga von á frá Klopp | Myndband

„Ég er bara venjulegur maður frá Svartaskógi í Þýskalandi. Ég var miðlungsfótboltamaður og gerðist þjálfari hjá mjög sérstökum félögum. En ég er algjörlega venjulegur maður. Ég er sá venjulegi,“ sagði Klopp og uppskar mikinn hlátur viðstaddra.

Vísir/Getty
Fundurinn var langur og svör Klopp voru ítarleg. Meðal þess sem hann sagði að hann telur að Liverpool getur unnið titil á næstu fjórum árum. Hann bað þó um þolinmæði.

„Þetta er allt saman óraunverulegt fyrir manni,“ sagði Klopp sem skrifaði undir þriggja ára samning við Liverpool í gærkvöldi. Umstangið síðustu daga hefur verið mikið en Klopp segist ekki hafa áhuga á slíku.

„Ég er venjulegur knattspyrnustjóri og vil vinna með liðinu og vera á hliðarlínunni. Þegar ég fór frá Dortmund [í sumar] fannst mér mikilvægara að hugsa um hvað fólki fannst um mig þegar ég kvaddi félagið - ekki þegar ég kom.“

„En ég bið um að fá tíma. Með þolinmæði og vinnu getur Liverpool náð árangri. Ef við sitjum hér saman eftir fjögur ár þá verður kominn titill á því tímabili.“

Vísir/Getty
Klopp segir að hann telji það ekki vandamál að starfa með félagskiptanefnd Liverpool sem ákveður stefnu liðsins í leikmannakaupum. „Hvað mig varðar er það nóg að eiga fyrsta og síðasta orðið. Þess á milli má ræða allt saman. Það myndi ekki taka langan tíma því við viljum aðeins ræða um mjög góða leikmenn.“

Hann vill snúa við gengi liðsins og segir að nú sé rétti tíminn fyrir félagið að byrja upp á nýtt. „Það skiptir ekki svo miklu máli hver verður meistari heldur en að við spilum okkar leik og njótum trausts og stuðnings fólksins. Við verðum að breytast úr efasemdarfólki í fólk sem trúir.“

Klopp sagði að það væri mikill heiður að fá að þjálfa jafn stórt félag og Liverpool.

„Þetta er mesti heiður sem ég get ímyndað mér. Þetta er eitt stærsta félag heims. Ég fæ nú tækifæri til að hjálpa félaginu að komast úr aðstæðum sem eru ekki jafn slæmar og margir í þessu herbergi álíta. Þetta er góður tími fyrir mína aðkomu að liðinu. Ég er stoltur.“

„Þetta er ekki venjulegt félag. Þetta er sérstakt félag.“

Behind the scenes at Anfield with Jürgen Klopp. See even more golden moments from the new manager's first day only on LFCTV and LFCTV GO by subscribing now: http://www.liverpoolfc.com/watch #KloppLFC

Posted by Liverpool FC on Friday, October 9, 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×