Klók viđskipti

Fréttablađiđ Fastir pennar 07. október 2007 03:13
Jón Kaldal
Jón Kaldal
Jón Kaldal skrifar:

Klaufagangur, baktjaldamakk og græðgi í aðdraganda að samruna Reykjavik Energy Invest (REI) og Geysis Green Energy (GGE), hefur orðið til að skyggja á mikilvægasta grundvallarmálið að baki hinu sameinaða félagi. Að minnsta kosti þá hlið sem snýr að eigendum Orkuveitu Reykjavíkur, íbúum höfuðborgarinnar og nágrannasveitarfélögunum.

Uppnámið yfir heimild útvalinna starfsmanna, ráðgjafa og fyrrverandi kosningastjóra til kaupa á hlutum í REI á sérkjörum á fyllilega rétt á sér. Sem og óánægja minnihlutans í borgarstjórn, og reyndar innan meirihlutans líka, yfir skömmum tíma og takmarkaðri upplýsingagjöf í tengslum við samruna félaganna.

Sjálf hugmyndafræðin um að fyrirtæki í opinberri eigu freisti þess að koma í verð og ávaxta óefnisleg og óbókfærð verðmæti á borð við þekkingu, reynslu og tengsl, er hins vegar stóra viðfangsefnið. Og það verður að ræða þegar búið er að afgreiða gullæðið sem rann á einstaklinga innan Orkuveitunnar í tengslum við REI, og hefur orðið þeim til minnkunar.

Í raun grundvallast þetta viðfangsefni í svörum Hannesar Smárasonar og Svandísar Svavarsdóttur í Fréttablaðinu í gær. Í bláa horni einkaframtaksins er Hannes: „Auðvitað hefði verið lítið mál fyrir Orkuveituna að sleppa þessu alveg og leyfa okkur hinum að dansa frjálsum, en þá er líka ljóst að minna hefði setið eftir." Og þar á Hannes við að Orkuveitan ætti ekki möguleika á að ávaxta fyrrnefnd óefnisleg verðmæti sín án þátttöku í REI. Í hinu horninu, því rauða, situr Svandís og segir: „Það er ekkert annað sem býr að aðkomu þessara manna en að græða sem allra mest á sem allra skemmstum tíma. Það fer illa saman við hugmyndir og tilgang opinberra fyrirtækja."

Þetta er alveg rétt hjá Svandísi. En hinn kaldi veruleiki er aftur á móti sá að einkaframtakið er komið á flug í orkugeiranum og hefur í farangrinum hugmyndir um útrás þar sem þekking Íslendinga á virkjun jarðvarma leikur lykilhlutverk. Og það þarf sérlega hrekklausan einstakling til að halda að Hannes og félagar hefðu ekki einfaldlega keypt út úr Orkuveitu Reykjavíkur þá menn sem hafa einmitt mesta þekkingu og reynslu á því sviði.

Má reyndar ganga út frá því sem vísu að raunsæisleg afstaða til þeirrar hættu hafi legið að baki stofnun REI. Með þeim gjörningi gerði Orkuveitan sig betur gildandi á útrásarsviðinu og dró úr líkum þess að þekking og reynsla þar innandyra hyrfi án greiðslu. Enda er það nú komið á daginn að títtnefndar óefnislegar eignir Orkuveitunnar eru komnar með verðmiða og hafa verið færðar til bókar á tíu milljarða við sameiningu REI og GGE.

Þessa eign, sem var ekki einu sinni til fyrir viku, getur Orkuveitan því selt á morgun kæri hún sig um. Væntingar eru um að verðmæti REI tvö- til þrefaldist á næstu árum og má því ætla að skynsamlegt sé fyrir Orkuveituna að eiga sinn hlut áfram um hríð, þótt óhjákvæmilegt sé að hún selji á endanum.

Miðað við núgildandi lagaumhverfi er ekki hægt að segja annað en að Orkuveitan hafi spilað geysilega vel úr sinni stöðu og að borgarstjóri hafi staðið af festu vörð um hagsmuni eigenda fyrirtækisins. Hann hefur á hinn bóginn gjörtapað hinu svokallaða ímyndarstríði, sem er ekki nýtt á stuttum ferli hans á stóli borgarstjóra. Og enn er ósvarað þeirri spurningu hvort frammistaða hans muni hafa enn alvarlegri afleiðingar fyrir hann innan eigin flokks.


Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega lćt ég ógeđslega ritskođunartilburđi fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhćfa planiđ

Ţegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir ţau tímabundna ráđstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alţingiskosningar bauđ RÚV frambođunum ađ fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráđherra skrifađi athyglisverđa grein hér í blađiđ í síđust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getađ fariđ inn á vefsíđur Íbúđa...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvćđaveiđigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síđustu viku međ talsverđum lúđrablćstri svokallađa fjárfestingaáćt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferđarráđherra og sérgreinalćknar?

Í umrćđunni undanfariđ hefur veriđ tíđrćtt um gjöld vegna komu til sérfrćđilćkna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftiđ mýta?

Sćl, Sigga Dögg. Ég las greinina ţína um mýtuna um ţröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Lifid
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Klók viđskipti