Sport

Klippti hárið sitt í miðjum leik og það virkaði | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Svetlana Kuznetsova með skærin í nótt.
Svetlana Kuznetsova með skærin í nótt. Vísir/Getty
Rússneska tenniskonan Svetlana Kuznetsova fórnaði hári fyrir sigur á tennismóti í Singapúr í nótt en þetta er lokamót ársins á milli átta bestu tenniskvenna heims.

Svetlana Kuznetsova var að keppa hina pólsku Agnieszku Radwanska og var að berjast fyrir lífi sínu í leiknum þegar hún tók upp skærin í einu leikhléinu.Radwanska vantaði bara eitt stig í viðbót til að tryggja sér sigurinn og slá Svetlönu út. Svetlana Kuznetsova er í sjöunda sæti heimslistans eða fjórum sætum neðar en Agnieszka Radwanska.

Kuznetsova var hinsvegar tilbúin að fara öðruvísi leið að því að koma sér í betri stöðu fyrir endasprettinn í leiknum.  Hún náði sér í skæri, klippti hlut af taglinu sínu og snéri aftur inn á völlinn. Hún var greinilega léttari á fæti eftir klippinguna því hún tryggði sér sigurinn.

Ástæðan var þó samt ekki þyngdin á hárinu heldur það að taglið var alltaf að slást framan í hana.

„Ég var að reyna að koma taglinu aftur fyrir hárbandið en hárið mitt er mjög þykkt og þungt. Á lokakaflanum fór taglið alltaf í andlitið á mér og það háði mér,“ sagði Svetlana Kuznetsova eftir leikinn.

„Á þeim tímapunkti hugsaði ég: Hvort er mikilvægara núna, hárið sem vex aftur eða leikurinn?,“ sagði Svetlana. Það er hægt að sjá myndband af henni með skærin hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×