Klippimyndir Sigríðar til sölu 2. júlí 2009 05:00 Fjórða einkasýning Sigríðar Níelsdóttur hefst í 12 Tónum í dag.
Sigríður Níelsdóttir opnar sína fjórðu einkasýningu í 12 Tónum við Skólavörðustíg í dag. Sýndar verða 24 klippimyndir sem hún hefur unnið undanfarið ár. „Þetta eru klippimyndir úr blöðum og öllu sem ég kemst yfir og geri úr því myndir," segir Sigríður, sem er 79 ára og býr á Reyðarfirði. „Það getur verið landslag, bátur, rúta, dýr eða ýmislegt annað og þetta er allt innrammað," segir hún og bætir við að engar tvær myndir séu eins. Verk Sigríðar hafa fengið góðar viðtökur í gegnum árin og selst afar vel. Hún segist ekki vita hvort einhverjir safni myndunum en tekur fram að stundum hafi þær verið keyptar sem gjafir, enda séu þær ekki mjög dýrar. Sigríður er einnig þekkt fyrir tónlistarsköpun sína og mikil afköst á því sviði. Alls hefur hún sent frá sér rúmlega sextíu geisladiska á undanförnum níu árum og vakið athygli bæði hér heima og erlendis fyrir einlæga tónlist sína. Lög eftir hana hafa hljómað í tveimur myndum Dags Kára Péturssonar, Nóa albinóa og Voksne Mennesker og einnig verður lag eftir hana í nýjustu mynd hans, The Good Heart. Að auki hafa þau Kristín Björk Kristjánsdóttir (Kira Kira) og Orri Jónsson, sem hefur unnið með Degi Kára, verið að vinna heimildarmynd um Sigríði. „Þau voru að vonast til að klára hana einhvern tímann í sumar. Þetta er skemmtilegt fólk að umgangast," segir Sigríður. Sýningin í 12 Tónum stendur yfir til 1. september. Opnunin í dag verður haldin á milli 17 og 18.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Sjá meira