Klettaskóli endurbættur fyrir 2 milljarða króna Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. febrúar 2012 15:41 Nýi skólinn stendur þar sem gamli Öskjuhlíðarskólinn stóð. Mynd/ Róbert
Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag að ráðast í nýja viðbyggingu og stórfelldar endurbætur á Klettaskóla, nýjum sameinuðum sérskóla í Reykjavík. Til stendur að koma þar upp 3.400 fermetra viðbyggingu með íþróttaaðstöðu og sundlaug sem þjóna mun skólanum. Þá er gert ráð fyrir að íþróttafélög fatlaðra geti nýtt íþróttasal og sundlaugina. Þessu til viðbótar verður eldra húsnæði breytt til að það henti betur starfsemi skólans. Frístundastarf, sem í dag er í leigðu húsnæði, mun flytjast inn í skólann að framkvæmdum loknum. Húsnæði skólans mun stækka um helming við þessar framkvæmdir, úr tæplega 3.000 fermetrum í 6.340 fermetra. Borgarráð gerir ráð fyrir að heildarkostnaður við framkvæmdir verði um 1.970 milljónir króna og er gert ráð fyrir að hönnun og framkvæmdir við byggingu fari fram á árunum 2012-2015 og endurgerð á eldra húsnæði fari fram á árunum 2015-2016. Þegar framkvæmdum lýkur verður öll starfsemi skólans á einum stað, en nú er nemendum ekið bæði í sund og frístund. Klettaskóli þjónar öllu landinu og annast ráðgjöf vegna nemenda með sérþarfir í öðrum grunnskólum.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira