Klassísk rauð og hvít jól

Fréttablaðið Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Klassísk  rauð og hvít jól
Hátíðarborð Sæunnar Þorsteinsdóttur myndlistarkonu er klassískt, fært inn í umgjörð gamalla muna. Sæunn býr í Miðdal í Mosfellsbæ, þar sem Guðmundur Miðdal bjó, en hann var afabróðir hennar. Húsið sem hún býr í núna er í eigu ömmu hennar og að einhverju leyti byggt úr gamla húsi Guðmundar.

„Það er yndislegt að búa hérna, engin ljósmengun en samt í raun örstutt frá borginni. Ekki skemmir að vera í húsinu hennar ömmu, innan um hennar muni, og ég notaði hnífapörin sem amma keypti í verslunar­ferð sem hún fór í til Færeyja fyrir nokkrum áratugum," segir Sæunn.


Klassísk  rauð og hvít jól
Hátíðarborð Sæunnar er klassískt, fært inn í umgjörð gamalla muna.

Sæunn vinnur mikið með pappír í list sinni og bjó til origami-brot úr servíettunum og klippti hvíta pappírs­lengju til að hengja á panel­inn. Glösin eru frá Sæunni sjálfri en eru af gömlum lager, keypt í Norska húsinu í Stykkishólmi.


Klassísk  rauð og hvít jól
„Það er föst jólahefð að mála rauð epli með hvítum glassúr, hef gert það með strákunum mínum, og þau eru svo borðuð jafnóðum. Ég notaði þau við borðskreytinguna og til þess að fá eitthvað sígrænt í borðið fór ég upp í brekku hér fyrir ofan og tíndi sitt af hverju til að leggja ofan á kertastjakann."- jma


Klassísk  rauð og hvít jól
Sæunn vinnur mikið með pappír í list sinni og notaði origami-brot á pappírinn á servíetturnar og sneri því við. Eplin eru máluð með glassúrkremi.

Fleiri fréttir - Jólavefur

Þú ert hér: Forsíða / Jólavefur / Klassísk rauð og hvít jól