Fótbolti

Kjartan Henry tryggði Horsens fyrsta sigurinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kjartan Henry er kominn með tvö mörk í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Kjartan Henry er kominn með tvö mörk í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. mynd/twitter-síða horsens
Kjartan Henry Finnbogason tryggði Horsens öll stigin þrjú þegar liðið tók á móti Lyngby í 6. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Kjartan Henry kom inn á sem varamaður á 87. mínútu í stöðunni 1-1. Og aðeins þremur mínútum síðar var framherjinn öflugi búinn að skora og tryggja Horsens sigurinn.

Þetta var annað mark Kjartans Henry á tímabilinu en hann skoraði einnig í 2-2 jafntefli gegn Bröndby fyrir tæpum þremur vikum síðan.

Þetta var fyrsti sigur Horsens á tímabilinu en liðið gerði fjögur jafntefli í fyrstu fimm umferðunum í dönsku deildinni.

Hallgrímur Jónasson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Lyngby sem er í 6. sæti deildarinnar með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×