Fótbolti

Kjartan Henry kominn með 15 mörk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kjartan Henry og félagar eru á leið upp í dönsku úrvalsdeildina.
Kjartan Henry og félagar eru á leið upp í dönsku úrvalsdeildina. mynd/twitter-síða horsens
Kjartan Henry Finnbogason skoraði annað mark Horsens í 0-2 sigri á Frederica í dönsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Þetta var 15. mark Kjartans á tímabilinu en hann er markahæstur í deildinni.

Kjartan hefur alls gert 26 mörk í 49 deildarleikjum síðan hann kom til Horsens frá KR 2014.

Horsens er í 2. sæti deildarinnar með 54 stig, þremur stigum á eftir toppliði Lyngby.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×