Formúla 1

Kimi Raikkonen fljótastur á þornandi braut

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kimi Raikkonen fór hraðast allra í dag.
Kimi Raikkonen fór hraðast allra í dag. Vísir/Getty
Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á síðasta æfingadegi fyrri æfingalotunnar fyrir komandi tímabil í Formúlu 1.

Pirelli fékk að vökva brautina fyrir æfinguna og í hádeginu til að gera liðinum kleift að prófa regndekkin. Liðunum lá ekkert mikið á að komast út á brautina til að taka þátt í þeim æfingum. Mikill brautarhiti og sólskin gerðu það að verkum að brautin þornaði talsvert hratt.

Lewis Hamilton átti að aka Mercedes bílnum fyrir hádegi en ekkert varð úr því. Mercedes sagði að rafmagnsvandamál hefði komið í veg fyrir að hann næði að keyra. Þrátt fyrir það var Valtteri Bottas kominn um borð í Mercedes bílinn fyrir hádegi. Hamilton hafði áður sagt að hann væri lítt hrifinn af því að prófa í bleytunni og að hann myndi hugsanlega gera sér upp meiðsli til að sleppa við það. Hann ók að minnsta kosti ekki.

Antonio Giovinazzo ók Sauber bílnum í dag í fjarveru Pascal Wehrlein sem er að glíma við eymsl í hálsi. Giovinazzo þurfti stundum að leita aðeins að brautarmörkunum.Vísir/Getty
Max Verstappen varð annar fljótastur á Red Bull bílnum, tæpri sekúndu á eftir Raikkonen. Verstappen ók 85 hringi. Jolyon Palmer á Reanult varð þriðji, sem kemur kannski ögn á óvart en hann var einungis um níu þúsundustu úr sekúndu á eftir Verstappen. Palmer ók einungis 39 hringi.

Eini maðurinn sem komst meira en 100 hringi var Romain Grosjean á Haas bílnum en hann var fjórði fljótasti ökumaðurinn og fór 118 hringi.

Toro Rosso átti ekki góðu gengi að fagna á æfingunni. Daniil Kvyat ók bílnum einungis einn hring.

Stoffel Vandoorne setti vandræðagemling McLaren liðsins í örskotsstundu á toppinn yfir hröðustu bíla dagsins. Það breyttist þó fljótt en sýnir að ekki er öll nótt úti enn fyrir McLaren.

Williams liðið tók ekki þátt á æfingunni vegna skemmda sem árekstur Lance Stroll olli á undirvagni bílsins á æfingu síðasta dags.

Frekari æfingar fyrir tímabilið hefjast þriðjudaginn 7. mars og verða áfram í Barselóna. Vísir mun fylgjast áfram með gangi mála.


Tengdar fréttir

Hamilton fljótastur og Mercedes fór lengst

Fyrsti æfingadagurinn fyrir komandi tímabil í Formúlu 1 er að kvöldi kominn. Lewis Hamilton var fljótastur á Barselóna brautinni í dag. Mercedes liðið ók lengst allra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×