Kieler Nachrichten: Besta lið Kiel frá upphafi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. maí 2012 23:45 Leikmenn Kiel fagna titlinum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Staðarblaðið Kieler Nachrichten segir að lið Alfreðs Gíslasonar þetta tímabilið sé það besta sem Kiel hefur átt frá stofnun félagsins. Alfreð og lærisveinar hans tryggðu sér þýska meistaratitilinn í gær eftir fimm marka sigur á Magdeburg. Ekkert lið hefur aldrei unnið meistaratitilinn svo snemma á tímabilinu enda hefur Kiel unnið alla 29 deidlarleiki leiki sína til þessa - sem er vitanlega met. Wolf Paarmann, blaðamaður Kieler Nachrichten, heldur því fram að núverandi lið Kiel sé það besta frá upphafi og það sé ekkert sem bendir til að það eigi eftir að veikjast á komandi árum. Kiel hefur átt frábærri velgengni að fagna á síðustu árum og er sigursælasta félagslið Þýskalands frá upphafi. Titillinn nú er sá sautjándi sem félagið hefur unnið. Næsta lið á eftir, Gummersbach, hefur unnið tólf. Paarmann segir að fjársterk lið eins og Hamburg og Rhein-Neckar Löwen séu með augastað á titlinum en að það verði erfitt að komast fram úr Kiel. Liðið muni styrkja sig enn frekar í sumar með komu þeirra Guðjóns Vals Sigurðssonar, Rene Toft Hansen og Marko Vujin. Þá gæti líka verið að Kim Andersson taki eitt ár í viðbót með félaginu en samningur hans rennur út árið 2013. Hann hefur þegar ákveðið að ganga þá til liðs við AG í Danmörku en sagan segir að hann vilji komast þangað strax í sumar. „Þetta er frábær árangur hjá liðinu," sagði Alfreð í samtali við þýska fjölmiðla eftir leikinn. „Það hefur verið sérstaklega gaman að sjá hversu vel leikmennirnir hafa spilað allt tímabilið og hversu vel þeir hafa náð saman." Landsliðsþjálfarinn Martin Heuberger sagði árangur liðsins með ólíkindum. „Þetta er einstæður árangur hjá Kiel. Ég gæti vel trúað því að liðið vinni alla leikina á tímabilinu," sagði hann. Heuberger vill þó aðeins meiri spennu í deildina á næsta tímabili. „Það er ekkert sérstaklega gott fyrir deildina þegar eitt lið hefur nánast tryggt sér meistaratitilinn þegar deildin er hálfnuð." Aron Pálmarsson leikur með Kiel sem er einnig komið í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar sem og Meistaradeildar Evrópu.
Handbolti Mest lesið Argentína - Ísland | Messi og félagar mæta strákunum okkar Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira