Viðskipti innlent

Keypti fyrir tæpar 370 milljónir í Icelandair Group

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lífeyrissjóðurinn Gildi keypti í morgun 20 milljónir hluta í Icelandair Group. Miðað við gengi bréfanna, sem er 18,6, nemur kaupverðið 369 milljónum króna. Þetta kemur fram í flöggun til Kauphallarinnar. Gildi á nú 5,3 prósent hlut í Icelandair Group. , eða liðlega 265 milljónir hluta. Markaðsverðmæti heildarhlutarins er þá 4,9 milljarðar íslenskra króna.

Gildi lífeyrissjóður hefur verið nokkuð á kauphliðinni í dag, en auk kaupanna í Icelandair Group var keyptur 261 milljóna króna hlutur í Vátryggingafélagi Íslands í morgun. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×