Tónlist

Kennir fólki að smíða rafmagnsgítar

Freyr Bjarnason skrifar
Gunnar Örn Sigurðsson hefur undanfarin ár kennt á námskeiði í gítarsmíði á vegum Tækniskóla Íslands.
Gunnar Örn Sigurðsson hefur undanfarin ár kennt á námskeiði í gítarsmíði á vegum Tækniskóla Íslands. fréttablaðið/stefán
Gunnar Örn Sigurðsson hefur undanfarin ár kennt á námskeiði í gítarsmíði á vegum Tækniskóla Íslands. Hann telur að hátt í eitt hundrað manns séu búnir að smíða sinn eigin rafmagnsgítar hér á landi.

„Þetta hefur aldrei verið gert áður á Íslandi. Þetta er vel falið leyndarmál,“ segir Gunnar Örn.

Hann er þessa dagana að smíða svokallaðan Flying V-gítar sem verður boðinn upp til góðgerðamála á tónlistarhátíðinni Rokkjötnum, eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku.

Gunnar Örn byrjaði með námskeiðið árið 2007 og hefur það haldið áfram á hverju ári síðan. „Hún er ótrúleg á þessu litla landi, þessi gífurlega aðsókn,“ segir Gunnar, sem byrjar með nýtt námskeið 23. september.

Hægt er að smíða þrjár tegundir af gíturum og kostar námið um 170 þúsund krónur. „Inni í því eru spýturnar, lakkið, teinninn í gegnum hálsinn og hnetan sem strengirnir falla í. Það eina sem menn þurfa að kaupa er „pick-up“ og „hardware“.“

Aðspurður segir Gunnar Örn að alls konar fólk hafi stundað námið. „Þetta eru áhugamenn um gítara og atvinnutónlistarmenn hafa verið líka eins og Beggi Morthens og Þorleifur Guðjónsson.“

Aðeins ein kona hefur látið sjá sig á námskeiðinu og kom hún árið 2007. „Það væri gaman að sjá fleiri konur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×