Glamour

Kendall og Gigi óþekkjanlegar í nýjasta tölublaði W Magazine

Ritstjórn skrifar
Það hefur verið átt við andlit Kendall Jenner í W.
Það hefur verið átt við andlit Kendall Jenner í W. Mynd/Skjáskot
Fyrirsæturnar og vinkonurnar Gigi Hadid og Kendall Jenner eru vægast sagt óþekkjanlegar í nýjasta tölublaði W Magazine. Andlit þeirra hafa verið lagfærð á undarlegan hátt eins og má sjá á myndunum hér fyrir neðan. 

Þetta er allt saman gert í tilefni 10 ára útgáfuafmælis blaðsins. Tölublaðið snýst að mestu um listir og því var farið óhefðbundnar leiðir þegar unnið var að forsíðuþættinum. Lagfæringarnar og myndatakan var stýrð af listamönnunum Ryan Trecartin og Lizzie Fitch.

Myndaþátturinn er skemmtileg tilbreyting frá þessum hefðbundu forsíðum sem við höfum séð á þúsundum tískutímarita. Eflaust eitthvað sem maður mun muna eftir. 






×