Keflvíkingar sjálfum sér verstir 29. júní 2004 00:01
Nýliðar Keflavíkur byrjuðu leik í Landsbankadeild karla af miklum krafti og liðið sat í toppsæti deildarinnar eftir fyrstu þrjár umferðirnar með sjö stig. Síðan þá hefur sigið á ógæfuhliðina hjá liðinu sem hefur aðeins fengið þrjú stig út úr síðustu fimm leikjum og þau stig komu í hús í ósannfærandi í 1-0 sigri á Víkingum á heimavelli 7. júní. Keflavík hefur síðan þá tapað þremur leikjum í röð með markatölunni 2-9 og fyrir vikið er liðið á hraðri leið niður stigatölfuna og stefna í harðan heim fallbaráttunnar áður en langt um líður. Það finnst mörgum sem hafa séð til hins unga og efnilega Keflavíkurliðs að Keflvíkingar séu sjálfum sér verstir. Þeir eru hættir að spila sinn skemmtilega bolta, boltinn fær ekki að ganga lengur og þeir virðast vera búnir að missa allt sjálfstraust í sínum aðgerðum - bæði í vörn og sókn. En það er ekki bara það sem gerir þeim lífið leitt því liðið hefur nú skorað sjálfsmark í þremur leikjum í röð. Ólafi Ívari Jónssyni var það á að skora sjálfsmörk bæði gegn ÍBV út í Vestmannaeyjum sem og gegn Skagamönnum á heimavelli og í fyrrakvöld skoraði síðan Sreten Djurovic sjálfsmark gegn nágrönnunum í Grindavík. Keflvíkingar hafa þannig skorað fleiri mörk í sitt eigið mark en þau sem þeir hafa skorað í mark andstæðingann í þessum þremur tapleikjum. Þetta er í fyrsta sinn sem lið skorar sjálfsmark í þremur leikjum í röð í tíu liða efstu deild en Keflvíkingar jöfnuðu einnig met Skallagrímsmanna (1997), Víkinga (1993) og Eyjamanna (2003) yfir flest sjálfsmörk eins liðs á einu tímabili og þeir eiga tíu leiki eftir á tímabilinu til að eignast það met einir. Það vekur líka athygli að níu leikmenn hafa skorað níu mörk Keflavíkurliðsins í sumar, átta Keflavíkingar og einn FH-ingur en Tommy Nielsen skoraði sjálfsmark í viðureign liðanna í þriðju umferð. Tveir bættust í hópinn í gær þegar þeir Sreten Djurovic og Zoran Daníel Ljubicic opnuðu þá markareikning sinn í sumar en Jónas Sævarsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Stefán Gíslason, Scott Ramsey, Hörður Sveinsson og Þórarinn Kristjánsson eru einnig með eitt mark á bakinu í Landsbankadeild karla í sumar. Flest sjálfsmörk eins liðs á tímabili: 3 Víkingur 1993 3 Skallagrímur 1997 3 ÍBV 2003 3 Keflavík 2004
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stemningin á Times Square engri lík Breiðablik - Stjarnan | Ná Blikar að halda toppsætinu? Fram - Grindavík/Njarðvík | Framarar þurfa sigur Þróttur R. - ÍBV | Risaslagur um þriðja sæti deildarinnar Víkingur - FH | Heldur FH sigurgöngunni áfram? Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Dagskráin: Besta kvenna aftur af stað með risadegi Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jökull rekinn frá Stjörnunni Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Sjá meira