Körfubolti

Keflavík þéttir raðirnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Davíð Páll hefur verið lengi að.
Davíð Páll hefur verið lengi að. Vísir/Anton
Keflvíkingar hafa fengið miðherjann Davíð Pál Hermannsson frá Haukum. Þetta kemur fram á karfan.is.

Davíð, sem er 29 ára, skoraði 7,2 stig og tók 3,3 fráköst að meðaltali í leik með Haukum í deildarkeppninni í fyrra.

Davíð lék með Grindavík til ársins 2009 og gekk svo í raðir Hauka fyrir tímabilið 2010-11.

Keflvíkingar, sem leika undir stjórn Helga Jónasar Guðfinssonar á næstu leiktíð, hefja leik í Domino's deildinni gegn Skallagrími í Borgarnesi 9. október næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×