Kaup Magma í HS hugsanlega ólögleg Ingimar Karl Helgason skrifar 29. desember 2009 18:30
Kaup kanadíska félagsins Magma Energy í HS orku, kunna að fara á svig við íslensk lög, að mati Lagastofnunar Háskólans. Endanleg niðurstaða um lögmætið fáist ekki nema fyrir dómstólum. Kanadíska félagið Magma Energy hefur keypt sig inn í HS orku, orkufyrirtæki Reyknesinga og á nú ríflega 40 prósenta hlut. Þetta var gert í gegnum sænsk félag sem upphaflega hét AB Grogrunden og var stofnað var í byrjun júní. Nafni félagsins var svo breytt í Magma Energy Sweden mánuði síðar. Samkvæmt lögum um fjárfestingu erlendra aðila hér á landi, mega fyrirtæki og einstaklingar utan Evrópska efnahagssvæðisins, ekki eiga í íslenskt orkufyrirtæki. Nefnd sem sér um að fylgja lögunum eftir, hefur haft það til skoðunar og er búist við niðurstöðu í næsta mánuði. Lagastofnun Háskóla Íslands hefur unnið lögfræðiálit fyrir nefndina um málið. Eftir því sem fréttastofa kemst næst telur lagastofnun að kaup kanadíska félagsins, í gegnum það sænska, séu á gráu svæði. Svo megi líta á að með því að nota sænska félagið séu íslensk lög sniðgengin. Nefndin geti lagt það til við efnahags- og viðskiptaráðherra að leyfi til fjárfestingarinnar verði ekki veitt. Það kunni þó að verða erfitt að rökstyðja að lögin hafi vísvitandi verið sniðgengin. Endanleg niðurstaða gæti vart fengist öðruvísi en fyrir dómstólum. Yrði niðurstaða dómstóla á annan veg, þá gæti það leitt til þess bótakröfu á hendur ríkinu. Síðan kynni nefndin að líta svo á að eðlilega hafi verið að fjárfestingunni staðið og yrði þá ekki aðhafst frekar í málinu. Enn fremur gæti hún lagt það til við ráðherra, þar sem vafi leikur á niðurstöðunni, að lög um fjárfestingar erlendra aðila yrðu endurkoðuð til að eyða vafa í svona málum.
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira