Innlent

Katrín fundar með fjórum flokksleiðtogum í dag

Heimir Már Pétursson skrifar
Katrín Jakobsdóttir fundar með leiðtogum fjögurra flokka dag til að ræða grundvöll fyrir myndun ríkisstjórnar.
Katrín Jakobsdóttir fundar með leiðtogum fjögurra flokka dag til að ræða grundvöll fyrir myndun ríkisstjórnar. Vísir/Ernir
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna fundar með leiðtogum fjögurra flokka á Alþingi klukkan 13 í dag til að ræða grundvöll fyrir myndun ríkisstjórnar Vinstri grænna, Viðreisnar, Pírata, Bjartrar framtíðar og Samfylkingarinnar.

Þetta verður fyrsti sameiginlegi fundur flokkanna um myndun stjórnar frá því Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands veitti Katrínu umboð til stjórnarmyndunar síðast liðinn miðvikudag. En Katrín fundaði með leiðtogum flokkanna hverjum fyrir sig á fimmtudag og var í símasambandi við þá í gær og fundaði einnig með þingflokki sínum.

Reiknað er með að leiðtogarnir taki með sér einn annan fulltrúa hver um sig á fundinn.

Katrín mun gera forseta Íslands grein fyrir stöðunni í viðræðunum á mánudag eða þriðjudag. En þegar hann veitti henni umboðið sagði hann að Katrín yrði að hafa hraðar hendur þótt ekki mætti ana að neinu við myndun ríkisstjórnar.

Bæði forsetinn og Katrín sögðu á Bessastöðum á miðvikudag að Alþingi þyrfti að fara að koma saman, enda rétt rúmar fimm vikur til áramóta og fjárlög óafgreidd. Alþingi getur komið saman þótt ekki sé búið að mynda ríkisstjórn. En samkvæmt hefð stýrir sá þingmaður sem hefur mesta þingreynslu fyrstu fundum Alþingis og í þetta skipti verður það Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi ráðherra.

Búist er við að fundurinn í dag taki um tvær klukkustundir og að honum loknum ætlar Katrín að ræða við þingflokk sinn.


Tengdar fréttir

Píratar og Viðreisn lýsa yfir samstarfsvilja

Formenn Pírata og Viðreisnar blása á sögusagnir um lítinn samstarfsvilja sín í milli. Flokkarnir hafa þótt líklegastir til að vera ljón í vegi við myndun fimm flokka ríkisstjórnar undir stjórn Vinstri grænna. Mál skýrast betur um helg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×